Mikið fikt í gangi

Eins og glöggir lesendur hafa eflaust tekið eftir þá er ég mikið að fikta í síðunni og reyna að læra hvernig hægt er að laga og bæta án þess að skemma.  Aumingja Kidda er orðin frekar leið á grúskinu í mér….

Annars er helgin búin að vera dásamleg, róleg og góð. Afmæli hjá Brynjari litla frænda á föstudag en hann varð 3ja ára.  Honum finnst frekar gaman að bílum og helst ef þeir geta búið til óhljóð í leiðinni.  Um kvöldið heimsóttum við kærar vinkonur í Hafnarfjörðinn, þær Söru Hjalla Dögg og Bylgju Hauks.  Alltaf gaman að heimsækja þær enda höfðingjar heim að sækja. Í gær fórum við á kynningu á frambjóðendum Samfylkingarinnar í Reykjavík og það var ansi gagnlegt við val á þeim 8 aðilum sem maður má kjósa. Það eru 16 í framboði og allir eru þeir mjög frambærilegir og valið á milli manna og kvenna erfitt.  Ég ætla að reyna að stulða að einhverri endurnýjun…meira um það seinna.

Gleymdi að segja ykkur að Laufey er búin að vera í skólafríi og hefur verið hjá pabba sínum.Hún kom samt í afmælið hjá Brynjari og hittum við hana þar. Viti menn, haldið þið að barnið hafi ekki verið komin með gervineglur, ég legg ekki meira á ykkur.  Mjög langar og með svona hvítri rönd fremst….hún nær varla að taka mikið til með þessi fínheit eða hvað?

Jæja, best að halda áfram að fikta, Kiddu til mikillar gleði :-)

This entry was posted on Sunday, November 5th, 2006 at 3:25 pm and is filed under Börn, Tölvur. You can follow any responses to this entry through the RSS 2.0 feed. You can leave a response, or trackback from your own site.

One Response to “Mikið fikt í gangi”

  1. November 7th, 2006 at 10:52 am

    Helga Atlad. says:

    Þetta er rosalega flott síða hjá ykkur, það verður gaman að sjá hvernig hún þróast. Mér finnst þetta með uppskriftir og það sem er alveg efst algjör snilld, væri mjög til í að kunna svona. Hafið það gott, bestu kveðjur frá Þýskalandi.

Leave a Reply

  • Undirsíður

  • Gamalt

  • Flokkar