Stungið á dekkin en allt í besta lagi með oss

Elsku vinir og fjölskylda það er í besta lagi með okkur þríeykið.  Það var bara erfitt að komast í tölvuna í Barcelona og við vorum líka svo hrikalega mikið að gera hjá okkur alla daga.  Við nýttum hverja einustu mínútu til hins ítrasta.  Við vorum í Barcelona frá sunnudegi til laugardags og fórum í Gaudi garðinn, Tibitabo tívolíið, að versla, á ströndina í Sitges, að versla, skoðuðum kirkjuna, La Sagrada familia sem er algjört snilldarverk, skoðuðum gosbrunna lasersjó en það gekk ekki stóráfallalaust fyrir sig því einhverjir glæpaunglingar skáru á dekkið hjá okkur.  Laufey leynilögregla varð vitni að þessu og en mæður hennar trúðu henni ekki sögum mikilla sagnahæfileika hennar sem eiga það til að fara út fyrir mörk hins raunverulega :-) .  Við vorum sem betur fer svo rænulausar að við föttuðum þetta ekki fyrr en við vorum búnar að keyra einhverja vegalengd  og leggja þar að auki.  Þannig að pörupiltarnir höfðu ekki árangur sem erfiði í þessu tilfelli en augljóst var að þeir ætluðu að ræna okkur. 

Hápunktur heimsóknarinnar til Barcelona var þó að okkar mati æðisleg töffarahjólaleiga þar sem við leigðum okkur hjól í tvígang og hjóluðum út um ALLA BORG. Það er alveg frábært að hjóla í Barcelona því það eru hjólabrautir mjög víða. Með þessu móti fengum við fengum við aðra sýn á borgina og sáum miklu meira af henni en við hefðum ella gert. 

Við fundum besta tapasbar ferðarinnar í Barcelona eða allavega þar sem var mesta úrvalið af góðum réttum. Við fórum þangað þrisvar í ferðinni…..TXAPELA og er hann neðarlega á Gracia breiðstrætinu.  Við mælum eindregið með þessum stað. 

Við flýttum ferð okkar frá Barcelona því við vorum farnar að þrá rólegheitarlíf og hreinlæti og lögðum við því af stað á laugardegi í stað þriðjudags á La Colina í Albir þar sem ma og pa og Brynja biðu okkar óþreigjufull :-) .  Ferðin þangað gekk stórkostlega og náðum við að klára að hlusta á glæpasöguna sem við höfum verið að hlusta á á leiðinni í bílnum frá því við lögðum af stað frá Granada.

Á La Colina höfum við “tjillað” og “tjillað” og erum við loksins á góðri leið með að “hel-tana” okkur. Við verðum ógeðslega súkkulaði brúnar þegar við komum heim…..

Við mætum á klakann um miðnætti á laugardagskvöld, blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en við verðum á heimaslóðum á sunnudaginn í brjáluðu stuði. Verið velkomin.

Látum þetta duga að sinni, meira eftir að heim verður komið.

Ykkar

Kína og Lovely

This entry was posted on Tuesday, July 17th, 2007 at 5:26 pm and is filed under Ferðalög. You can follow any responses to this entry through the RSS 2.0 feed. You can leave a response, or trackback from your own site.

One Response to “Stungið á dekkin en allt í besta lagi með oss”

  1. July 18th, 2007 at 10:23 am

    Hanna fræ says:

    hlökkum til að sjá ykkur… Gummi og Hanna fræ

Leave a Reply

  • Undirsíður

  • Gamalt

  • Flokkar