30 dagar í Poja litla (eða hér um bil)
Kæru vinir og vandamenn til bæjar og sveita.
Nú eru bara 30 dagar í áætlaðan fæðingardag og er Poji litli farinn að troða sér ofan í grind móður sinnar númer eitt, með tilheyrandi sársauka í lífbeini og grind. Mér finnst hún konan mín alveg langsætasta ólétta konan í heiminum og er með stór plön um að halda henni óléttri næstu árin…..
Hér koma svakalega sætar myndir af henni Kiddu minni sem ég tók áðan:
Eins og þið sjáið þá er Kidda í myndatöku uniforminu, þannig er hægt að sjá trendið betur

Orðin svolítið þreytt og situr við eldamennskuna. Ekki gefst hún upp, heldur finnur lausn á öllu, líka hvernig er hægt að elda þreyttur

Að lokum langar mig að monta mig af nýjustu frænkunni minni sem ennþá er ónefnd og er Einars bróður míns dóttir.

Bið að heilsa í bili
Ína
This entry was posted on Monday, October 1st, 2007 at 6:59 pm and is filed under Börn, Fjölskyldan, óléttan. You can follow any responses to this entry through the RSS 2.0 feed. You can leave a response, or trackback from your own site.
October 2nd, 2007 at 10:51 am
Flottar myndir af flottu fólki…
Gangi ykkur vel
kveðja frá Akranesi, Helga
October 2nd, 2007 at 12:05 pm
ELSKU MÆÐUR!
Ég er að farast úr spenningi. Baráttukveðjur til mömmu eitt og grindarinnar hennar og lífbeins. Komasso skagamenn Kidda mín x x x
October 3rd, 2007 at 3:44 am
Já hún Kidda er svo sannarlega gullfalleg ólétt kona.
Gangi ykkur vel á síðustu metrunum……þeir eru bestir…hahahaha….
Spennandi að fylgjast með.
Bestu kveðjur
October 3rd, 2007 at 11:26 am
Já Ína mín thad er rétt konan thín er langsaetasta ólétta konan í öllum heiminum svo er hún líka svo yndisleg og nice eitthvad….en thad ert thú líka
gangi ykkur vel med allt, elsku thid,
ást og virding
Jóki fraendi
October 3rd, 2007 at 4:32 pm
Æi þú ert svo æðislega Kidda mín og flott ólétt kona,alveg sammála Ínu um það.En nú fer ég að hringja,alveg satttttt….gangi ykkur vel
October 4th, 2007 at 7:29 am
Jiminneini… er svona stutt eftir!!
Mér finnst fara Kiddu afskaplega vel að vera með bumbu og vona ég að hún fái fleiri svoleiðis;o)
Mér finnst líka lítið barn klæða hana Ínu svakalega vel þannig að þetta passar allt saman;o)
Gangi ykkur vel síðasta sprettinn!
October 4th, 2007 at 7:38 am
Æðislegar myndir af ykkur. Til hamingju!
October 5th, 2007 at 8:13 am
Farðu vel með þig og njóttu
October 8th, 2007 at 12:11 pm
Fallegust

Gangi þér á síðasta sprettinum Kidda mín og farðu vel með þig og Poja litla.
Knús til ykkar allra
Kveðja frá Röggu og Dúbbu litlu.
October 11th, 2007 at 7:30 pm
Kidda mín gaman að sjá myndirnar þar sem maður hefur ekki hitt þig lengi. Gangi þér vel á lokasprettinum. Kveðja til Ínu og Laufeyjar
kv. Sigurlaug
October 26th, 2007 at 9:43 am
Sælar elskur
Takk fyrir síðast Ína mín það var frábært að fá að sjá þig hér á hjara veraldar.
Er að kíkja til að frá fréttir af gangi mála hja ykkur, og skoðaði myndir í leiðinni , er reyndar engu nær ?
Vonandi hafi þið það sem allra best.
Kveðja
Ásta Kristín