“Þurrbrjósta” poji
Heil og sæl vinir og vandamenn,
Tengdamamma er ljósmóðir og hún vildi endilega að við kæmum í skoðun upp á Akranes því þar ætlum við að eiga Poja ef allt gengur upp. Það var frábært að fara í mæðraskoðun þar, margreynd ljósmóðir tók á móti okkur og svo var Kidda skoðuð af fæðingarlækni með sónartæki. Kom í ljós að Poji litli hefur nánast ekkert vatn til að synda í og er afskaplega smár. Hann er 21,5% undir meðaltali og meðaltal á Íslandi er ca. 3.600 grömm. Það þýðir að Pojinn okkar verður hugsanlega ekki nema 11-12 merkur. Vegna þessa er nánast útilokað að Kidda verði látin ganga framyfir tímann sem er 31. okt. Næstu daga þarf Kidda að mæta í tékk daglega þar sem fylgst verður með að Poji litli nærist því það er hætta á að hann hætti að nærast undir þessum kringumstæðum. Kidda er því í góðu yfirlæti hjá ma og pa á Skaganum því þar verðum við í tékki héðan í frá.
Verð dugleg að setja inn fréttir.
Kveðja
Ína
This entry was posted on Friday, October 12th, 2007 at 7:42 pm and is filed under Óflokkað. You can follow any responses to this entry through the RSS 2.0 feed. You can leave a response, or trackback from your own site.










October 13th, 2007 at 8:51 am
Gangi ykkur alveg svakalega vel og þú mátt alveg knúsa hana Kiddu frá mér!
Verða þá ekki daglegar fréttir á síðunni?
Ég hugsa til ykkar og fylgist með;o)