Poji er sprækur
Kidda fór í mónitor áðan og allt lítur vel út með Poja. Hann spriklar og virðist líða vel þrátt fyrir vatnsskort. Kidda fer aftur í mónitor á morgun, læt vita hvernig fer.
Áfram Ísland
Ína
This entry was posted on Saturday, October 13th, 2007 at 3:55 pm and is filed under Börn, Fjölskyldan, Heilsan, Óflokkað. You can follow any responses to this entry through the RSS 2.0 feed. You can leave a response, or trackback from your own site.










October 14th, 2007 at 1:15 pm
Gott að sá stutti er sprækur.
Vona að mömmurnar séu það líka
kveðja
October 14th, 2007 at 1:55 pm
Gaman að geta fylgst með hér á síðunni, flottar myndir af ykkur.
Gangi ykkur rosa vel á síðustu metrunum.
Bestu kveðjur
Guðrún H
October 14th, 2007 at 6:28 pm
Hæ Ína mín.Vonandi gengur allt vel hjá ykkur.Skilaðu kveðju til Kiddu og Laufeyjar frá mér.Kveðja María frænka
October 14th, 2007 at 6:56 pm
Gott að heyra að lilli er sprækur. Er alltaf að fylgjast með, finnst svo gaman að því að Kidda sé sett sama dag og ég fyrir einmitt 2 árum en svo átti ég 20. október (38 vikur og 1 dagur).
Aldrei að vita nema Sigurlaug María fái bara lítinn frænda í afmælisgjöf. Ætlum að reyna halda smá afmæliskaffi hér á laugardag enda amma og afi bæði að koma frá Íslandi til að missa ekki af afmælisdeginum
Skilaðu góðri kveðju til Kiddu frá mér
Ykkar frænka,
Helga Huld
October 14th, 2007 at 8:27 pm
Erum staddar í afmæliskaffi hjá Lullu frænku og bíðum allar spenntar eftir því hverning gengur með Poja litla. Ætli hann vilji ekki bara fara að koma í heiminn. Enda margir í fjölskyldunni fæddir í október en Heiðrún á afmæli á þriðjudaginn og kannski gerist eitthvað þá.
Gangi þér vel Kidda
Magga Lilja, Heiðrún og Sigurlaug
October 15th, 2007 at 3:08 pm
Gott að allt gengur vel með hann Poja…. nú bíður maður bara spenntur!!
Gangi ykkur áfram vel…