Allt gott að frétta af Poja
Jæja, þarna hljóp fæðingarlæknirinn aldeilis á sig því í flæðissónarnum kom í ljós að Poji er alveg í meðaltali stór og legvatnið er líka alveg í meðallagi. Það er því engin ástæða til að hafa neinar áhyggjur. Kidda fer reyndar í mæðraskoðun á morgun og þá verður formlega ákveðið hvað gert skuli en allar líkur á að beðið verði eftir að Poji ákveður sjálfur að koma í heiminn.
Takk fyrir hlýjar kveðjur.
Ína
This entry was posted on Monday, October 15th, 2007 at 7:04 pm and is filed under Börn, Fjölskyldan, Heilsan, óléttan. You can follow any responses to this entry through the RSS 2.0 feed. You can leave a response, or trackback from your own site.
October 16th, 2007 at 10:55 am
hurra
gott ad heyra. En 12 merkur er lika finasta stærd
kærar kvedjur fra Erlu og Röskvu
October 17th, 2007 at 1:48 pm
Gott að heyra að allt lítur vel út.
Knús frá mér og Dúbbu litlu.
October 18th, 2007 at 8:48 am
Hæ hæ
Gaman að geta fylgst með ykkur hér. Flott síða! Gangi ykkur vel vel með litla poja.
Kveðja Sigga
October 18th, 2007 at 8:54 pm
Þið eruð nú í mega góðum höndum á Skaganum. Frábært að heyra að þetta lítur vel út. Hann er nú tilbúin og vill fara að komast og sjá mömmur sínar. Ástarkvejður Guðveig
October 19th, 2007 at 10:22 am
Það er nú gott að heyra að allt lítur eðlilega út…. hlakka til að heyra meira..
Bestu kveðjur,
Heiðrún
October 22nd, 2007 at 3:14 pm
Gott að heyra.Hvernig væri að blogga,hvernig gengur á síðustu metrunum?Síðasta færsla er orðin vikugömul svo maður er spenntur að heyra nýjustu fréttir.
Gangi allt rosa vel hjá ykkur.Kveðja María