Draumaprinsinn mættur á svæðið

Stuttar fréttir af Rokkfjölskyldunni.  Yfir Rokk sannaði í dag hvað það er að vera sannur rokkari, það er nefnilega að vera sönn hetja.  Hún Kidda mín var mesta hetja sem ég hef nokkru sinni hitt í þessari fæðingu.  Hún notaðist eingöngu við jógatækni til að koma sér í gegnum fæðinguna og fékk því engin meðöl.  Hún hafði engan áhuga á þeim, heldur andaði bara inn um nefið og út um munninn með svokallaðri haföndun.  Ég hef bara aldrei elskað hana eins heitt eins og í dag.  Allt gekk þetta eins og í lygasögu og Poji kom í heiminn klukkan 14:47.  Draumaprinsinn var síðan ekkert lítill eins og gárungarnir voru búnir að spá heldur rétt rúmar 15 merkur eða 3.765 grömm og 53 cm.  Pilturinn grét þegar hann fæddist eins og til er ætlast en bara rétt nóg til að hreinsa sig, síðan þá hefur hann ekki grátið.  Hann saug strax bæði brjóstin og fór svo að sofa.  Þegar þetta er ritað er hann búinn að sofa í 5-6 tíma samfellt, þrátt fyrir að sumir séu búnir að reyna mikið að vekja hann (m.ö.o. amma Sóla).  Þetta lofar því mjög góðu.  Pilturinn var ansi blár þegar hann fæddist en það eltist af honum á 2 tímum. Nú er hann svakalega súkkulaði sætur eins og neðangreindar myndir gefa til kynna.  Mig langar að skrifa miklu meira um þessa upplifun en þar sem Kidda og ónefndur (nú verður maður að hætta að kalla hann Poja svo það festist ekki við hann) bíða eftir mér uppá spítala en ég skrapp heim til tengdó til að skrifa nokkrar línur og sýna ykkur myndir.

Að lokum langar mig að þakka ljósmóðurinni okkar henni Helgu vinkonu tengdamóður fyrir að taka á móti Poja fyrir okkur. Helga er búin að vera á bakvakt fyrir okkur í nokkrar vikur núna.  Tengdamamma sem líka er ljósmóðir var líka viðstödd og voru þær saman í að taka á móti.  Kærar þakkir til ykkar fyrir að gera þetta að svona rómantískri og fallegri stund.  Ég er ekki enn farin að trúa hvað þetta var falleg og átakalítil og róleg stund (með jógátónlist og jógailm).

Ég skora síðan á Kiddu að skrifa ýtarlega fæðingasögu  þegar hún verður búin að jafna sig.  Þ.e.a.s. ef hún man eitthvað eftir þessu, hún var nefnilega í svo massa mikilli og djúpri íhugun allan tímann.

Ást til ykkar allra.

Ína

Ps. Laufey stóra systir stóð sig líka eins og besta stóra systir og fékk að vera með í stórum hluta ferilsins.  Hún verður besta stórasystir í heimi :-)

 

 

 

 

 

 

This entry was posted on Saturday, October 27th, 2007 at 10:09 pm and is filed under Börn, Fjölskyldan, Heilsan, Myndir, óléttan. You can follow any responses to this entry through the RSS 2.0 feed. You can leave a response, or trackback from your own site.

40 Responses to “Draumaprinsinn mættur á svæðið”

  1. October 27th, 2007 at 10:19 pm

    Helga Atlad. says:

    Kidda hetja, til lukku með svona yndislega fæðingu.

  2. October 27th, 2007 at 10:26 pm

    Heiðrún Hámundar says:

    Vá, ég get svo svariða að ég fór bara að háskæla þegar að ég skoðaði myndirar ykkar;o)
    Hjartans hamingjuóskir með prinsinn ykkar. Sá er aldeilis lukkunnar pamfíll með þrjár mömmur til að hugsa um sig;o)

  3. October 27th, 2007 at 10:32 pm

    Hildur Þ says:

    Innilega til hamingju með litla prinsinn ykkar kæra fjölskylda kveðja kvöldvaktin Höfða.

  4. October 27th, 2007 at 10:41 pm

    Fjóla Þorvaldsdóttir says:

    Innilegar hamingju óskir til ykkar allra. Hann er yndislegastur.
    Kær kveðja,
    Fjóla Þorvalds.

  5. October 27th, 2007 at 10:50 pm

    Allý says:

    Innilega til hamingju allar með þennan fallega dreng.
    Kidda, þú rokkar!

  6. October 27th, 2007 at 11:12 pm

    Dísa og Þóra says:

    Elsku stelpur, innilega til hamingju með þennan fallega dreng ! við hlökkum ekkert smá til að hitta hann :-) Vonum að þið hafið það sem allra best

    kv. Þóra, Dísa og Sigþór

  7. October 27th, 2007 at 11:40 pm

    Jódís og Guðrún says:

    Ekki laust við táraflóð á þessum bæ:) Hann er fullkominn með rokkhárgreiðslu, til hamingju allar þrjár með litla gullið.
    Kveðja Jódís og Guðrún.

  8. October 28th, 2007 at 1:34 am

    María says:

    Innilega til hamingju aftur elsku Kidda,Ína og Laufey Ebba,hann er yndislegur.Fallegt blogg hjá þér Ína og takk fyrir að sýna okkur svona fljótt allar þessar fallegu myndir,maður bara tárast.Hlakka til að hitta þennan nýja frænda minn.Kveðja María

  9. October 28th, 2007 at 2:28 am

    Jóhanna Steinunn says:

    Þvílík gleðistund.
    Innilega til hamingju allar þrjár með litla prinsinn (er maður ekki bara ponsu líkur afa Þóri??).
    Gott að heyra að öllum heilsast vel og að stundin hafi verið ykkur yndisleg.
    Bestu kveðjur

  10. October 28th, 2007 at 6:56 am

    Svana says:

    Það er bara ekki annað hægt en að tárast yfir svon fallegri sögu og stórkostlegum dreng sem er alveg með svip af honum Tóta afa sínum. Kidda mín svo mikil strandakona að taka svona létt á þessu, hlakka til að heyra alla söguna frá byrjun til enda, ég er mikil áhugakona um fæðingasögur. Risa koss á ykkur allar og nú tel ég dagana í að fá að hitta sætasta strákinn í bænum!

  11. October 28th, 2007 at 7:16 am

    Helga Huld frænka says:

    Elsku Ína, Kidda og Laufey Ebba, hjartanlegar hamingjuóskir með litla gullmolann. Hann er alveg yndislegur og gullfallegur.

    Skila kveðjur frá Bjarna og Sigurlaugu Maríu.

  12. October 28th, 2007 at 8:33 am

    Hildigunnur frænka says:

    Ég er bara búin að vera grátandi síðustu klukkutíma, af eintómri gleði. Til hamingju með þennan dásamlega, undursamlega fallega rokkprins. Við Ásta vöknuðum eldsnemma í morgun til að athuga hvort ekki væru komnar myndir af honum, og hún ljómaði þegar hún skoðaði myndirnar :) Get ekki beðið eftir að hitta ykkur fallegu fjölskylduna og knúsa þann litla, þegar þið eruð búnar að jafna ykkur. Vona að allt gangi vel, sem mig grunar að sé málið…..tóm hamingja framundan. Ástarkveðjur frá Álftamýri

  13. October 28th, 2007 at 10:05 am

    Sigurlaug says:

    Elsku fjölskylda
    Aftur hamingjuóskir, myndirnar æðislegar og prinsinn yndislegur. Það er rétt sem kemur fram að hann sýnist í fyrstu vera líkur afa sínum.
    mikið var ég glöð að heyra að jógaöndunin og tæknin skilaði sér svona vel í fæðingunni.
    Hlakka til að sjá hann
    kveðja Sigurlaug

  14. October 28th, 2007 at 11:21 am

    guðveig says:

    Já tárin fara sko sannarlega að trilla. Er lífið ekki dásamlegt!?
    Ástarkveðjur til ykkar og hamingjuóskir. Takk fyrir að setja strax inn myndir Ína. Var að deyja úr spenningi!

  15. October 28th, 2007 at 12:58 pm

    Magga says:

    Elsku Ína Kidda og Laufey Ebba

    Innilega til hamingju með prinsinn, ég táraðist líka eins og allir hinir að lesa bloggið þitt Ína :) Mikið eruð þið lánsamar að fæðingin gekk svona vel og var svona yndisleg. Kemst ekki uppeftir í dag en kíki á ykkur um leið og ég kem frá UK.

    kv.
    Magga

  16. October 28th, 2007 at 1:30 pm

    Krissý says:

    Til hamingju öll.
    Þetta er stórkostlegt!
    Hlakka til að fá fleiri myndir og fleiri fréttir.
    Þúsund kossar

  17. October 28th, 2007 at 5:53 pm

    Sara og Bylgja says:

    Þúsund hamingjukossar til ykkar elsku fjölskylda. En yndislegar myndir…frábært að lesa hve þessi stund hefur verið ykkur dýrmæt og yndisleg! Við hlökkum þvílíkt til þess þegar við fáum tækifæri til að kíkja á ykkur. Knús og kossar Sara og Bylgja.

  18. October 28th, 2007 at 6:05 pm

    eva says:

    Innilega til lukku með prinsinn, hann er greinilega fæddur rokkari, með rokkara hár og allt. Til hamingju með flotta fæðingu Kitta.

    Kveðja Eva og Kári
    (mánudagur kl 18.15 :-)

  19. October 28th, 2007 at 8:34 pm

    Ragga says:

    Innilega til hamingju elsku fjölskylda :)
    Æðislegar myndir og hlakka til að fá fæðingarsögu :)
    KNús frá mér og bumbu !!

  20. October 28th, 2007 at 8:48 pm

    Fjölskyldan á Sogaveginum says:

    Til hamingju með nýjasta gullmolann í fjölskyldunni hann er algjört æði og hlökkum til að sjá hann með berum augum:)
    Hafið það sem allra best og kossar og endalaust knús frá okkur…;)

  21. October 28th, 2007 at 8:52 pm

    L og T says:

    Elskurnar þetta er meiriháttar viðburður og Poji ( síðasta sinn sem ég kalla hann það) er fagur allan hringinn og innaní líka. Þið eruð svo fallegar og vissulega tárast maður með í hamingju ykkar. Kidda þú er solid rokk og tókst þetta pro style, þú færð ósvikna aðdáun fyrir dáðina. vonandi sjáum við hann sem fyrst,

  22. October 28th, 2007 at 9:57 pm

    Erla says:

    Hjartanlega til lukku med mini rokk :)

    kærar kvedjur fra Erlu og co.

  23. October 28th, 2007 at 11:38 pm

    Björk töffari says:

    Elsku Kidda,Ína og Laufey Ebba…..innilega til hamingju með þennan fullkomna rokkara sem hefur litið dagsins ljós.Hann er æði.Heyrumst fljótlega.

  24. October 29th, 2007 at 12:47 am

    Anna Björk says:

    Til hamingju með þennan yndislega dreng! Frábært að heyra að allt gekk vel, hlakka til að heyra (og sjá) meira:)

  25. October 29th, 2007 at 9:59 am

    Erla says:

    Elsku Kidda og Ína
    Til hamingju með prinsinn, hann er langflottastur.
    kossar
    Erla

  26. October 29th, 2007 at 1:52 pm

    Jón Bjarni says:

    Ef þið, stelpurnar þrjár, þurfið einhverja aðstoð þá er ég sérfræðingur í að ala upp stráka – kann reyndar bara það. :-)

    Hjartanlega til hamingju og gangi ykkur vel!

  27. October 29th, 2007 at 3:29 pm

    Samúel Örn Erlingsson says:

    Hjartanlega til hamingju með litla frænda!

  28. October 29th, 2007 at 5:40 pm

    Ragnheiður Jósúadóttir says:

    Kæra fjölskylda til hamingju með drenginn

  29. October 29th, 2007 at 7:38 pm

    Elfa Sif says:

    Elsku fallega rockfamilý
    Innilega til hamingju með litla prinsinn. Þvílíkur gullmoli! Yndisleg fæðingasaga og myndir. Hlakka til að fylgjast með litla rokkaranum :)

    Rock on!

  30. October 29th, 2007 at 10:59 pm

    Borghildur Jósúadóttir says:

    Til hamingju með nýja rokkarann, hann er bara flottur.
    kveðja Borghildur og fjölskylda

  31. October 29th, 2007 at 11:02 pm

    Inga, Helgi og fjölsk. Hvolsvelli says:

    Til hamingju með drenginn, hann er rosalega flottur.
    Gangi ykkur vel.

  32. October 30th, 2007 at 2:13 pm

    Sigrún Stefánsdóttir says:

    Kæra fjölskylda, innilega til hamingju með litla strákinn ykkar. Hann er algjört krútt og ekkert smá sætur. Vonandi heilsast öllum vel og gangi ykkur vel með allt saman.
    Kveðja Steini, Sigrún, Bárður Árni, Rebekka Rut og Róbert Elí

  33. October 30th, 2007 at 5:06 pm

    Vallý og Rannveig says:

    Innilega til hamingju með litla prinsinn.

    Gangi ykkur allt í haginn.

    Bestu kveðjur til ykkar allra.

  34. October 30th, 2007 at 9:37 pm

    Maddý og Jónas says:

    Innilegar hamingjuóskir með prinsinn. Dálítið svipar honum til afa síns. Kærar kveðjur til ykkar allra frá Fjölskyldunni Lilliendahl á Selfossi.

  35. October 30th, 2007 at 9:48 pm

    Arnar Þór Jónsson says:

    Kæra rokkfjölskylda,

    Hjartanlegar hamingjuóskir með nýjasta fjölskyldumeðliminn.

    Með ósk um bjarta og gæfuríka framtíð,
    Arnar

  36. October 30th, 2007 at 9:52 pm

    Elva Björk says:

    Innilega til hamingju með litla prinsinn !!!
    (Heiðrún frænka benti mér á síðnuna ykkar)
    Kveðja frá Kaupmannahöfn

  37. October 31st, 2007 at 8:29 am

    Kristinn Hallur says:

    Til hamingju með nýja þórhöllubarnið, hann er bráðmyndarlegur.
    Kveðja
    Kristinn Hallur, Margrét Rós og strákarnir.

  38. October 31st, 2007 at 9:14 pm

    Guðrún Halldórsd says:

    Velkominn í heiminn fallegi prins :)
    Innilega til hamingju með prinsinn elskurnar, hann er sætastur. Frábært hvað þetta gekk vel, Kidda þú ert hetja.
    Kossar og knús til ykkar allra frá okkur á Birkiteignum.
    Guðrún og co.

  39. November 1st, 2007 at 8:45 am

    gunnur says:

    Dásamlegt!
    Innilega til hamingju með lífið og tilveruna elsku fjölskylda.
    Hann er lukkunnar pamfíll þessi fallegi drengur!
    Knus og kram frá Lystrup,
    Gunnur og Claxtonarnir

  40. November 7th, 2007 at 3:36 pm

    Soffía og Salóme says:

    Kæra Ína, Kidda og Laufey Ebba

    er þetta ekki frábært… ekkert eins dásamlegt – liggja bara upp í rúmi og horfa og vera mjúkur og fullur af kærleik eins og ein manneskja getur verið… ótrúlegur unaður… vona elsku Kidda að þú njótir þess að vera á sængurlegunni eins og það heitir. Við mæðgurnar kíkjum bráðum í heimsókn…
    kveðja frá Soffíu frænku og Salóme

Leave a Reply

  • Undirsíður

  • Gamalt

  • Flokkar

  • IMG_9644 IMG_9643 IMG_9642 IMG_9641 IMG_9640 IMG_9639 IMG_9638 IMG_9637 IMG_9636 IMG_9635