Dagur 4 liðinn

Kæru vinir og vandamenn.  Okkur langar til að byrja á að þakka allar hlýju kveðjurnar sem við höfum fengið í athugasemdunum og með SMS.  Við erum ótrúlega ríkar af vinum og fjölskyldu og allir eru svo góðir :-) .  Síðan litla rokk fæddist þá höfum við fengið rúmlega 700 heimsóknir á síðuna. Reyndar eru ákveðnir aðilar ástsjúkir í garð litla rokks og heimsækja síðuna oft á dag :-) .  Reyndar er ég frekar forvitin að vita hver er í Kenýa  sem fylgist vel með okkur á rokkfamily.net.  Viðkomandi mætti alveg gefa sig fram….

Um helgina þá var sannkölluð fæðingasprengja á Akranesi og fæddust hvorki meira né minna en 8 börn. Þar af 4 nóttina eftir að hann fæddist.  Við þurftum því að yfirgefa svítuna (sem er með hjónarúmi) strax á sunnudagsmorgun og fékk Kidda rúm á stofu með annarri konu.  Við ákváðum því í samráði við ljósurnar okkar að flytja okkur til tengdaforeldranna strax á sunnudaginn.  Þar vorum við vafðar inn í bómul af tengdamömmu og pabba og Helgu ljósunni okkar sem býr í sömu blokk og tengdó.  Þegar við héldum heim á leið í gær, á þriðja degi, þá var brjóstagjöfin komin mjög vel á veg hjá Kiddu og litla rokk farinn að opna augun sín fallegu.  Þegar heim var komið hófust raðheimsóknir allra nánustu vina og ættingja og munu þær halda áfram næstu daga.  Við erum þó að reyna að stýra þessu aðeins því Kidda og litla rokk þurfa líka tíma til að slappa af og súpa mjólk.  Brjóstagjöfin hefur gengið mjög vel en hann hefur fært sig upp á skaptið og vill hanga á mömmu sinni.  Hann er ekki heldur alveg búinn að fatta að það eigi að sofa á nóttunni og vaka á daginn en við munum kenna honum það á næstunni :-) .

Í dag kom ljósan og tók blóðprufu og stóð litli sig alveg svakalega vel og fór ekkert að gráta.  Á morgun þá stendur til að baða hann í fyrsta skipti…

Að lokum þá vildi ég segja frá því að ég setti inn fleiri myndir af litla rokk hér og setti smá sýnishorn hér að neðan.

Bestu kveðjur

Ína

Fjöllskyldan með Helgju ljósu á leiðinni heim

Loksins fæ ég hann heim gæti Laufey systir verið að segja 

Sæt saman systkynin 

Ljósan að taka blóð 

Loksins sést í augun á manni      

This entry was posted on Thursday, November 1st, 2007 at 12:26 am and is filed under Börn, Fjölskyldan, Myndir. You can follow any responses to this entry through the RSS 2.0 feed. You can leave a response, or trackback from your own site.

14 Responses to “Dagur 4 liðinn”

  1. November 1st, 2007 at 7:27 am

    Kenyabuinn says:

    Hae og ho, til hamingju med nyja rokkarann! Kenyabuinn er Solrun Engilbertsdottir af Skaganum, minnir ad hun Hrund Oskars hafi bent mer a thessa sidu. Til lukku!

  2. November 1st, 2007 at 4:23 pm

    Jóka módursystir says:

    Thetta barn er dásamlegt, hann er bara pínu líkur mér, er thad ekki, hlakka svo til ad koma heim, oh, sakna ykkar alveg sjúklega mikid,
    knús litli saeti og yndislegi systursonur, ég elska thig, snökt snökt…..
    thín módursystir Jóka

  3. November 1st, 2007 at 6:34 pm

    Helgaljósa says:

    Gaman að skoða nýjustu myndirnar, hann horfir bara á mann ! Frábært að hvað allt gengur vel, lovjú Helga

  4. November 1st, 2007 at 8:31 pm

    guðveig says:

    Hann er svoo flottur!! …og þið líka.
    Alveg VÆTAL atriði að fjölskyldan fá i að kjarna sig í rólegheitum og Kidda og kid rokk fái að hvílast. Ekkert gesta rugl alla daga!!! já, The Farmer has spoken!

  5. November 2nd, 2007 at 2:39 pm

    Ragga says:

    Flottastur ;)
    Gott að allt gengur vel elskurnar ;)
    Knús á liðið !

  6. November 2nd, 2007 at 2:40 pm

    Rósa Hlín says:

    Innilega til hamingju með prinsinn! Hann er strax orðinn mjög myndarlegur og með þetta fallega hár!!!

  7. November 2nd, 2007 at 6:30 pm

    Sara og Bylgja says:

    Hrikalegt krútt er kríli… við bíðum spenntar eftir því að fá að sjá hann almennilega… og frábært að allt gangi vel og þið komnar heim??

  8. November 3rd, 2007 at 9:58 am

    Helga Atlad. says:

    Hann er nú meira yndið þessi drengur. Til hamingju enn og aftur. Já ég tek undir orð Guðveigar um að fá frið fyrir gestum fyrstu vikurnar. Kona er amk 6 vikur að jafna sig eftir fæðinguna, fyrir utan svo alla hina breytinguna sem verður á líkamanum og hlutverkunum sem bæst hafa við. Þannig að verið þið duglegar að hvíla ykkur og taka því rólega. Mæli með einföldum og góðum mat og tei.

    kveðja
    Helga

  9. November 3rd, 2007 at 11:04 am

    Heiðrún Hámundar says:

    Je dúdda mína hvað minn maður er sætur!!

    Gangi ykkur vel í nýja hlutverkinu….

  10. November 3rd, 2007 at 7:47 pm

    Kalli Hallgríms says:

    Færi ykkur hamingjuóskir úr sveitinni. Gangi ykkur allt í haginn.

  11. November 4th, 2007 at 10:38 am

    Ingunn Sveins. says:

    Kæra fjölskylda
    Til hamingju með flotta drenginn ykkar. Þetta er algjör gullmoli.
    Kveðja Ingunn frænka og co.

  12. November 5th, 2007 at 12:39 pm

    Heiða says:

    Æi hvað þetta eru frábærar myndir og þið öll sæt og hamingjusöm. Hjartanlega til hamingju með litla drenginn, líka gaman að sjá hvað Laufey er orðin mikil dama og falleg.
    Með bestu kveðju, Heiða (Skýrr)

  13. November 6th, 2007 at 7:23 am

    Sigga Dögg says:

    Hann er hreint út sagt dásemd þessi drengur!! Innilegar hamingjuóskir með hann og allt saman. Njótið nú vel og innilega þessara fyrstu daga. Þeir koma aldrei aftur :)
    Knús frá öllu Suðurgötugenginu.

  14. November 22nd, 2007 at 11:22 pm

    ásta kristín says:

    Yndislega fjölskylda

    Var að skoða myndir af ykkur enn og aftur til hamingju með prinsinn, prinsessuna og ykkur sjálfar. Þetta gerist ekki mikið betra.
    Þið eruð öll alveg svakalega flott.

    Hlakka til að heimsækja ykkur.

    Kveðja
    Ásta frænka á Akureyri.

Leave a Reply

  • Undirsíður

  • Gamalt

  • Flokkar