Spennandi tímar framundan

Mig langar að byrja á að þakka kærlega fyrir allar kveðjurnar bæði hér á síðunni og með SMS í tilefni afmælisins míns og prófloka sem vill nú svo skemmtilega til að voru sama daginn (28. apríl).  Í tilefni dagsins brugðum við stelpurnar okkur af bæ og fórum á Tapas barinn.  Þar rifjuðum við upp góða takta frá því í ferðalagi okkar um Spán í fyrra.  Við pöntuðum okkur 12 rétti, Laufey var strax með á hreinu hvað hún vildi. Hún pantaði sér kengúru, pírí pírí kjúkling, hvítlaukssnigla og patatas bravas.  Kidda var á hefðbundnari nótum, lamb í lakkríssósu, nautakjöt í teríakí sósu, humar í hvítlauk og túnfiskur.  Ég fékk hins vegar 4 rétti að vali kokksins og fékk reyktan lunda í bláberjabrennivínssósu, hörpuskel í beikondöðluvafningi, lambaspjót og humar/hörpuskel í einhverri gratineringu.  Þetta var allt meiriháttar gott en við vorum þó sammála um að lundinn stóð uppúr, þá hörpuskelin í beikondöluvafningi og kengúran.  Namminamminamm…..  vonandi verður góður tapas staður þar sem við verðum á Mallorca í sumar.

 Já við rokkfjölskyldan erum sem sagt að fara að bregða fyrir okkur betri fætinum í sumar.  Ferðalögin byrja reyndar strax í á morgun (4. maí) en þá fer ég til New York og þaðan til Boston á námskeið í persónulegum fjárfestingum.  Kidda og Þórir munu svo koma til Boston á fimmtudaginn og þá verður tekið á því í búðunum.  Þórir verður bara ólaður niður í vagninn og við örkum af stað….Laufey greyjið verður skilin eftir heima þar sem hún er hætt á brjósti en hún fær kannski sokkapar til að bæta það upp.  Heimkoma 13. maí.

28. maí verður síðan haldið til Mallorca í boði ma og pa a la grande í Innri Njarðvík town.  Þau eru sem sagt að verða sextug í sumar og ákváðu að bjóða “hele familien” með í utanlandsferð.  Þetta verða s.s. 2 ömmur, mamma og pabbi, systkyni mín 3, einn maki og 14 börn á aldreinum 6 mánaða til 14,5 árs.  Já og síðast en ekki síst Lilja móðursystir :-) .  Við verðum á Mallorca í 3 vikur en fyrstu vikuna verðum við bara með Ella og er planið að taka ferju til Barcelona og gista þar eina nótt.

Síðar í sumar er stefnan tekin á Dranga, í Bolungavík, á ættarmót og til Gautaborgar.  Og hvað þurfa konur ekki að vinna?  Ég er s.s. hætt hjá HugAx og er með tvennt annað í pípunum sem ekki er hægt að segja frá strax.   Sumarið verður sem sagt hlaðið orlofi.  Ekkert smá gaman.

Ég veit að margir kíkja inná síðuna til að fá fréttir af Þóri litla Sólbjarti Ínusyni Rokk og loksins koma þær.  Loksins er drengurinn orðinn kenndur við Ínu mömmu sína eftir smá þras við þjóðskrá.  Það virðist hið flóknasta mál að fá hann kenndan við hina mömmuna, þeir krefjast skriflegrar yfirlýsingar frá læknastofunni og okkur og alls kyns rugl. Hins vegar ef kona heldur fram hjá manninum sínum þá verður sá lausaleikskrói sjálfkrafa kenndur við eiginmanninn og enginn er spurður að neinu.  Sem sagt allt of flókið kerfi utan um ekki neitt.

Þórir varð 6 mánaða núna 27 apríl og er orðinn algjör gaur. Hann tók fyrstu veltuna á eigin vegum þann 11. apríl en núna veltir hann sér hring eftir hring í báðar áttir.  Hann er líka farinn að sitja og svo labbar hann um allt í göngugrindinni. Svo ég tali nú ekki um hvað hann er sjúklega handóður. Ég veit ekki hvort þetta sé alveg normal fyrir ekki eldra barn, mér finndist hann allavega alveg mega vera lilli dúlli aðeins lengur :-) .  Hann er líka farinn að borða fjölbreyttari fæðu, kartöflur og grænmeti, ávexti og grauta.  Það bólar hins vegar ekkert á tönnslunum sem við vorum sannfærðar um að kæmu snemma.  Hann er s.s. tannlaus greyjið…..

Þórir er þó alveg einstaklega tillitsamur. Til að mynda þá varð hann veikur í fyrsta skipti eftir hádegi daginn sem ég kláraði prófin.  Við Þórir erum því búin að vera tvö innilokuð alla vikuna því Kidda var að leggja parket og fleira.  Hann er nú allur að koma til núna en við þurftum að fá smá púst fyrir hann.  Eyrun hafa þó sloppið hingað til 7-9-13.  Það er algjör lúxus að vera með heimilislækni í fjölskyldunni sem getur tékkað á því þegar mömmurnar fá panic attac.

Ég er að vinna í því að hlaða inn myndum frá því í mars en það tekur heila eilífð.  Gæti verið vegna þess að tölvan er þráðlaus, er þó ekki viss.  Kíkið endilega beint á myndasíðuna okkar http://www.flickr.com/photos/rokkfamily/.

Þeir sem eru enn að lesa eru ekkert smá duglegir því þetta er orðin svakalega langur texti en svona er það þegar maður er of upptekinn til að blogga reglulega.

Kveðja frá Rokkfjölskyldunni – Ína Björk

This entry was posted on Sunday, May 4th, 2008 at 12:25 am and is filed under Börn, Ferðalög, Fjölskyldan, Matur, Myndir, Skólinn. You can follow any responses to this entry through the RSS 2.0 feed. You can leave a response, or trackback from your own site.

7 Responses to “Spennandi tímar framundan”

  1. May 4th, 2008 at 2:15 pm

    Ragga og Kamilla Ylfa says:

    Hhæhæ sæta familía.
    Til hamingju með allt saman :)
    Og ekkert smá spennó tímar framundan, Þórir Sólbjartur verður veraldarvanari en mörg börn á hans aldri efir árið :)
    Hlakka til að hitta ykkur loksins þegar við getum.
    Knús

  2. May 6th, 2008 at 8:44 pm

    María frænka says:

    Hæ hæ öll sömul.
    Síðbúnar hamingjuóskir til þín Ína mín :)
    Gaman að lesa fréttir frá ykkur.Góða ferð og góða skemmtun í útlöndunum…Kveðja María

  3. May 10th, 2008 at 2:41 pm

    Helga ljósa says:

    Ína mín innilega til hamingju með próflok og afmæli, gaman að sjá hvað prinsinn ykkar dafnar vel. Hafið það gott á ferðalögunum í sumar, mér sýnist sumarið verða spennandi!! Knús Helga

  4. May 11th, 2008 at 4:15 pm

    Una og Iðunn says:

    Hæhæ, datt hérna inn því ég fór allt í einu að hugsa til Kiddu og Þóris Sólbjarts um daginn. Við erum sem sagt komin aftur til UK, verðum hér í sumar og næsta vetur…ég er ekki frá því að Iðunn sakni “kærastans síns”.

  5. May 15th, 2008 at 5:15 pm

    Jóka syst says:

    Halló yndislegi Thórir minn, mikid ertu saetur, og hvad thú hefur staekkad mikid,
    velkomin heim frá Boston, hlakka til ad sjá myndir thadan…
    knús

  6. June 11th, 2008 at 12:10 pm

    Svana says:

    Kom hér við til að kíkja aðeins á yndislegastan. Ég hélt það væri ekki hægt að verða fallegri, en hann er bara enn sætari en síðast þegar ég leit við. Úff hvað mig hlakkar til að knúsann í sumar. Teljum dagana þar til við komumst á klakann. Verðum að panta tíma hjá ykkur sem fyrst.

    Kossar,
    S x

  7. July 3rd, 2008 at 10:29 pm

    Helga ljósa says:

    Auglýsi hér með eftir myndum af prins Þórir Sólbjarti á sólarströnd á Mallorka!! Kveðja

Leave a Reply

  • Undirsíður

  • Gamalt

  • Flokkar