Skyndiblogg

Mikil gagnkvæm ást Ã?að var svo margt spennandi að skoða í Boston Hreinn og sæll Ã? massa hláturskasti Kát saman II Búinn að nappa snúru Mjög starfssamur pjakkur Kát saman V 

Elsku vinir, fjölskylda og aðrir sem ramba inn á síðuna.

Það er allt meiriháttar að frétta af rokkfjölskyldunni. Við erum bara allt of uppteknar til að blogga.  Á milli þess sem við eltum orminn okkar (lesist Þóri Sólbjart) þá erum við á faraldsfæti. Búnar að fara til Boston og Spánar og svo skelltum við okkur á nýjan tjaldvagn um daginn og erum búnar að vera í 2 mögnuðum útilegum. Í annarri lentum við í hitabylgju en í hinni í “flóðbylgju”, það var svo mikil rigning. 

Þórir Sólbjartur dafnar svakalega vel, jafnvel of vel.  Hann er byrjaður að safna smá ístrubelg sem hann skautar um íbúðina á. Hann skríður nefnilega ekki eins og flestir krakkar heldur ormast hann um með því að draga sig áfram á bumbunni og tærnar hjálpa líka til. Á Spáni tók hann svo massa miklum framförum að við  ákváðum að pakka göngugrindinni þannig að hún hefur ekki verið í notkun í 2 mánuði núna.  Það er ekki enn komin tönn þó hann sé að verða 9 mánaða eftir nokkra daga.  Hárið sem var rauðbrúnt er eiginlega bara hvítt, hann er algjör glókollur (þið sjáið það betur í næstu myndaseríu sem ég ætla að reyna að setja inn í næstu viku).

 Það eru komnar inn myndir frá því í maí en þá fórum við m.a. til Boston með Thor Sunshine og slóg hann feitt í gegn hjá Könunum….  Við ætlum að reyna að setja inn myndir frá júní (t.d. Spáni) áður en við förum í næsta langa ferðalag en á fimmtudaginn höldum við í tveggja vikna ferðalag um Vestfirði og Strandir. Byrjum á Bolungavík þar sem fjölskyldan mín (Ínu) á hús og ferðumst eitthvað út frá því og förum svo á Dranga á Ströndum þar sem fjölskylda Kiddu á hús.  Erum núna á leiðinni á Laugavatn í sextugsafmæli föður míns sem á afmæli á morgun. Þar verður slegið upp mini útihátíð. 

 Video af Poja í baði (pínu gamalt)

YouTube Preview Image

Þar til næst…..

This entry was posted on Saturday, July 19th, 2008 at 9:41 am and is filed under Börn, Ferðalög, Fjölskyldan, Myndband, Myndir. You can follow any responses to this entry through the RSS 2.0 feed. You can leave a response, or trackback from your own site.

4 Responses to “Skyndiblogg”

  1. July 20th, 2008 at 8:12 am

    Jóka systir says:

    Oh ég verd alltaf svo sjúklega glöd thegar thid setjid inn nýjar myndir af Thóri (og ykkur líka)… magnad hvad hann staekkar mikid….

    kem til ykkar á thridjudaginn og thá aetla ég ad stela honum frá ykkur

    knús
    Jóks

  2. July 22nd, 2008 at 8:30 pm

    Helga ljósa says:

    Frábærar myndir! Sá hefur stækkað mikið! Sendi ykkur knús af Skaganum, Helga ljósa

  3. July 24th, 2008 at 3:09 pm

    Ragga og Kamilla Ylfa says:

    Vá hvað maður er orðinn stor og alltaf jafn handsome ;)
    HVenær skyldum við ná að hittast ? :)
    Knús og kram

  4. August 2nd, 2008 at 10:50 am

    Jóhanna Steinunn says:

    Sælar
    Alltaf er þessi drengur nú jafnmikið krútt, Þórir Sólbjartur þú ert flottastur.
    Ég beið einmitt líka til 9 og 10 mánaða eftir fyrstu tönninni hjá mínum strákum. Ég verð nú að viðurkenna að ég hélt um tíma að þær kæmu bara alls ekki neitt. Svo fékk Teitur sína og var bara með eina tönn í tvo mánuði, ég var frekar stressuð yfir þessu.

    Hafið það sem best.

Leave a Reply

  • Undirsíður

  • Gamalt

  • Flokkar