Gay Pride er alltaf jafn æðislega skemmtileg

Í gær var þjóðhátíðardagur samkynhneigðra á Íslandi eða Gay Pride.  Í okkar fjölskyldu telst þetta hátiðisdagur. Allir fara niður í bæ, snemma, skoða göngumenn og konur áður en lagt er í hann og spjallað við vini og kunningja. Síðan er labbað niður laugaveginn í hátíðarskapi.  Maður fyllist alltaf jafn mikilli gleði yfir öllu fólkinu sem er komið til að gleðjast með okkur og styðja við bakið á samkynhneigðum.  Ég (Ína) hef nú tekið þátt í öllum hátíðarhöldum og göngum frá árinu 1999 og ég held að það hafi aldrei verið jafn margir niðri í bæ og í gær. Það var hreinlega fólk alls staðar og maður komst varla fyrir á Arnarhóli til að fylgjast með skemmtiatriðunum. 

Um kvöldið fórum við með góðum vinum út að borða á Sjávarkjallaranum og það var alveg meiriháttar. Góður matur og mikið flissað. Að lokum skelltu hjónakornin sér á ball á Nasa og var það æðislega gaman. Páll Óskar er náttúrulega bara æði.  Reyndar fannst mér (Ínu) bassinn stilltur full hátt því húsið nötraði og skalf en sennilega er þetta ellimerki.  Fórum af Nasa þegar okkur fannst fólk orðið of fullt og búið að hleypa allt of mörgum inn. Kíktum aðeins við á Organ en vorum komnar upp í rúm rúmlega hálf þrjú.

Laufey passaði Þóri með aðstoð Hörpu vinkonu sinnar og gisti hann inni hjá þeim þannig að mæðurnar gátu sofið aðeins út.  Það er svo frábært að eiga svona góða dóttur sem er hægt að treysta svona vel :-) .

Þórisupdate:  Þórir er u.þ.b. 9,5 mánaða. Hann er kominn með fyrstu tönnina en mamma Ína fann hana á fimmtudaginn 7. ágúst klukkan 5.  Tönnin sést þó ekki ennþá en það heyrist greinilega í henni. Hann er byrjaður að sýna hvað hann er stór og klappar alveg svakalega vel, hann byrjaði á þessu hvoru tveggja á Hóli 25. – 30. júlí.  Hann stendur upp og sest niður hvar og hvenær sem er og er aðeins byrjaður að labba með.  Hann skríður um allt og gerir það eins og mælt er með, hann er sem sagt hættur að skúra gólfið með bubuunni (skreið áður eins og selur).  Þórir kanna að segja þrjú orð alveg greinilega það eru mamma, dudda og út.  Allt mjög mikilvæg orð í lífi hans.  Já og eins og sést á myndunum þá er hann ekki lengur rauðbrúnhærður heldur algjör glókollur. 

Loksins eru allar myndirnar frá Spáni komnar inn en það gerðist í nokkrum atrennum  (sjá hér: http://flickr.com/photos/rokkfamily/) Það koma seinna myndir frá Gay Pride, útilegum, ættarmóti Hannesarættarinnar, sextugsafmæli pabba (Hannesar), dvöl á Hóli á Bolungavík og síðast en ekki síst frá ferðinni okkar að ströndum.  Þetta er bunki af 500 myndum sem þarf að sortera, yfirfara, skerpa á og loks setja á netið. Þetta tekur allt sinn tíma en stefnt er að því að setja þetta inn áður en alvara lífsins byrjar í lok ágúst þ.e. vinna og skóli…..Þórir byrjar einmitt hjá dagmömmu 1. sept.

Sýnishorn af myndum frá Spáni:

Ã? stuði með mömmu Kiddu II Kidda elskar líka sushi Mikil ást milli systynanna I Ã?na og Ã?órir Brynjar passar mig svaka vel Mæðgin II Elín kát Með mömmu Ã?nu Ã?kafamaður Ã? ströndinni...Ã? ströndinni... Líkur ömmu Sólveigu á þessari mynd Agnes í þungum þönkum. Langflottust Er maður ekki brúnn... Laufey og Ã?órir 2 Ã?na máum við fá kókakóla ís.... 

This entry was posted on Sunday, August 10th, 2008 at 11:57 am and is filed under Börn, Ferðalög, Fjölskyldan, Myndir. You can follow any responses to this entry through the RSS 2.0 feed. You can leave a response, or trackback from your own site.

One Response to “Gay Pride er alltaf jafn æðislega skemmtileg”

  1. October 6th, 2008 at 7:21 pm

    Dagný says:

    Hæhæ

    Þetta er svo lítill heimur og varð ég að commenta á þetta hehe, ég google aði son minn og kom mynd af honum inn á þessari síðu og byrjaði ég þá að skoða síðuna ykkar. Og viti menn, við vorum saman á mallorca í sumar hehe hverjar eru líkurnar á þessu, og sonur minn var mikið að tala við dóttir ykkar og var hann heillaður af henni.

    Kv Dagný og Kristinn Hallur

Leave a Reply

  • Undirsíður

  • Gamalt

  • Flokkar

  • IMG_9644 IMG_9643 IMG_9642 IMG_9641 IMG_9640 IMG_9639 IMG_9638 IMG_9637 IMG_9636 IMG_9635