Óvenjuleg og jafnvel undarleg leigubílaferð

Heil og sæl vinir, nær og fjær.  Ég er stödd í Boston þessa dagana í vinnuerindum og í dag ákvað ég að taka leigubíl í BabiesRUS sem er í úthverfi Boston. Það væri nú ekki í frásögur færandi nema þegar ég er á leiðinni heim þá bið ég afgreiðslufólkið um að hringja á leigubíl fyrir mig.  Það var ekki málið. Ég bíð síðan í smá stund eftir leigubílnum.  Eftir 10 mínútur stoppar bíll fyrir framan búðina,, út um farþegagluggan er gömul kona gaggandi í áttina til mín.  Ég hunsa hana í upphafi en átta mig svo á að þetta er leigubíllinn minn.   Bílstjórinn var kona um fertugt, vel búttuð eða rétt rúmlega það og klædd í gráar joggingbuxur og stuttermabol, svona rétt eins og hún væri að standa upp úr sófanum þar sem hún var að enda við að horfa á baseball leik í sjónvarpinu.  Hún segist vera leigubílstjórinn og allt í góðu með það.  Hún sér síðan að ég er með talsverðan farangur þannig að hún reynir að opna skottið, það tekst loksins með sameiginlegu átaki hennar og konunnar inní bílnum.  Konan ýtir ítrekað á takka inní bílnum á meðan leigubílstjórinn reynir að opna skottið.  Allt í góðu.  Ég sest síðan uppí og segi hvert ég er að fara.  Leigubílstjórinn rataði ekki og ekki var GPS tæki í bílnum svo hún fer að spjalla við einhvern í gegnum talstöð um hvaða leið sé best að fara, svo hringir hún GSM símtal til að fá upplýsingar. Þetta tók ca. 10 mínútur.  Í millitíðinni kemst ég að því að konan í framsætinu var mamma leigubílstjórans sem hún var að sækja á spítala og hún var að keyra heim…  Þegar ég settist upp í bílinn skildi ég ekkert í því hvers vegna allir gluggar voru opnir uppá gátt, þrátt fyrir að það væri kvöld og frekar kalt úti.  Ég komst þó fljótlega að því hvers vegna. Gamlan var nefnilega dauðadrukkin (og greinilega var þetta engin undantekning)….  Það má þó segja að þær mæðgur voru mjög almennilegar og ræðnar og reyndist þessi leigubílaferð hin skemmtilegasta þrátt fyrir að vera undarleg….. og allar komu þær aftur og engin þeirra dó …..

Kveðja frá Boston – Ína

This entry was posted on Wednesday, September 10th, 2008 at 2:53 am and is filed under Ferðalög, Vinna. You can follow any responses to this entry through the RSS 2.0 feed. You can leave a response, or trackback from your own site.

2 Responses to “Óvenjuleg og jafnvel undarleg leigubílaferð”

  1. September 10th, 2008 at 5:14 am

    sirry frænka says:

    Hæ Ína mín,

    þetta var skemmtileg en furðuleg saga. haha. Einu sinni eða fyrir ca. 10 árum þá fór Veigar og vinur hans út að borða hér í LA og kíktu svo á einhverja skemmtistaði á eftir, þeir voru orðnir vel í því þegar þeir ákvaðu að taka sér leigubíl heim og þá mætti einn frekar furðulegur því fram í hjá honum sat kvenmaður. Hún fer að spjalla við þá og þeir eru komnir vel á leið þegar þeir átta sig á þvi að þetta var hóra sem var að leita sér að viðskiptavinum (ætli bílstjórinn hafi ekki verið melludólgurinn..haha). Þeim leist orðið ekkert á blikuna og létu bílstjórann stoppa fyrir utan annað hús í næstu götu, því ekki vildu þeir að þau vissu hvar þeir bjuggu. Það er ennþá verið að furða sig og hlægja að þessari sögu. Það er reyndar varað við því að fara ekki með hverjum sem er, maður þarf að leita eftir vissum skirteinum hjá bílunum, vegna þess það eru svo margir sem hlusta á símtölin og mæta á staðinn á undan leigubílnum sem var kannski hringt á.

    kv. Sirrý

  2. October 10th, 2008 at 6:49 pm

    Svana says:

    Jiiiii hvað þið eruð SÆTAR! Og nýja síðan er rosalega fín líka, knús til ykkar x x

Leave a Reply

  • Undirsíður

  • Gamalt

  • Flokkar

  • IMG_9644 IMG_9643 IMG_9642 IMG_9641 IMG_9640 IMG_9639 IMG_9638 IMG_9637 IMG_9636 IMG_9635