Fyrsta hjól Þóris
Ég fór og keypti þetta fína þríhjól fyrir Þóri minn, svona ekta smábarnahjól. Þórir var alsæll með hjólið sitt og skemmti sér í smá stund við að láta mömmur og stóru systur ýta sér áfram. Síðan prufuðum við að skrúfa hliðið af (sem átti að passa að hann dytti ekki til hliðanna) og þá fyrst fékk hjólið almennilegt skemmtanagildi fyrir Þóri. Hann tók skrúfuna og festinguna og lék sér við að pota skrúfunni í skrúfganginn og þykjast vera að festa festinguna á hinn endann í endalaust langan tíma. Ég er náttúrulega eins og allir aðrir foreldar því mér finnst hann svo ótrúlega verklaginn og það kæmi mér ekki á óvart ef hann legði fyrir sig iðn eða jafnvel verkfræði. En koma tímar og koma ráð….
Læt fljóta með mynd af athöfninni, get því miður ekki sett myndbandið sem ég tók inn á síðuna því í miðju kafi þurfti maður að gera stykkin sín….
Kveðja – Ína
This entry was posted on Saturday, May 2nd, 2009 at 8:57 pm and is filed under Óflokkað. You can follow any responses to this entry through the RSS 2.0 feed. You can leave a response, or trackback from your own site.











May 18th, 2009 at 1:38 pm
Je dúdda mía! Hér kem ég inn upp á tilviljun, og er ekki yndislegastur bara kominn á blátt hjól. Krúttrass er hann og nú verð ég að fá að knúsann í sumar. Gott líka að sjá að barnið á hjálm!
S x