Baka peninga

Nú heilsan öll í rétta átt hjá litlu kútunum okkar. Þórir fór á leikskólann í fyrsta sinn síðan fyrir þarsíðustu helgi og Ellert Orri er kominn heim af spítalanum. Hann verður einhvern tíma að ná sér en hann er kominn yfir það versta.

Mig langaði að segja frá skemmtilegu samtali sem við Þórir áttum í gær. Hann er mjög iðinn við að vera í leikjum þar sem hann býr til sögusviðið, er s.s. með mjög frjótt ímyndunarafl.  Svona samtal áttum við í gær:

Þórir: Ég er farinn í vinnuna (og labbar að útidyrunum)

Ég: Hvar ertu að vinna?

Þórir: Í gulu vinnunni (gulur er s.s. uppáhalds liturinn hans).

Ég: Og hvað gerir þú í gulu vinnunni?

Þórir: Baka peninga….

Unglingsskottið er þessa stundina að safna auglýsingum í eitthvað blað fyrir MR. Hlakka til að heyra meira um það. Þar held ég að hún gæti verið á réttri hillu.  Svo ætlar hún í skíðaferðalag til Akureyrar um næstu helgi.  Gaman að vera ungur og leika sér.  Spurning samt hvort hún eigi hrein föt til að vera í á morgun……….döhhhh…….aukaatriði að hennar mati……

Meira síðar – Ína

This entry was posted on Monday, March 1st, 2010 at 4:59 pm and is filed under Börn, Fjölskyldan. You can follow any responses to this entry through the RSS 2.0 feed. You can leave a response, or trackback from your own site.

Leave a Reply

  • Undirsíður

  • Gamalt

  • Flokkar

  • IMG_9644 IMG_9643 IMG_9642 IMG_9641 IMG_9640 IMG_9639 IMG_9638 IMG_9637 IMG_9636 IMG_9635