Um rokkfjölskylduna
Rokkfjölskyldan er nú orðin vísitölufjölskylda, eða er það ekki þannig þegar það eru mamma, mamma og 3 börn og 2 bílar?
Kidda rokk er húsasmiður og rokkari sem stundar nám í félagsráðgjöf. Kidda er í foreldraorlofi ásamt því að taka 2 kúrsa í skólanum.
Ína er viðskiptafræðingur og er loksins komin með masterspróf í fræðunum. Hún vinnur hjá Verne í hálfu starfi og er í foreldraorlofi í hálfu starfi. So er hún grúppía Kiddu rokk.
Laufey Ebba er unglingurinn á heimilinu og er hún á fyrsta ári í MR og vinnur hún í Nóatúni líka.
Þórir Sólbjartur er orðinn 2ja ára og er á leikskólanum Lækjaborg. Hann er jafn bjartur og nafnið gefur til kynna.
Ellert Orri er nýjasti fjölskyldumeðlimurinn, fæddur 20.01.2010. Við erum ennþá að kynnast honum en hann virðist geðgóður eins og bróðir sinn en þó ekki alveg skaplaus.
Ef þið þurfið að ná í Kiddu þá er hún með póstfangið kiddarokk@internet.is, Ína er með netfangið inabjork@internet.is.









