Rokkfjölskyldan - Rokkfamily » Börn

Baka peninga
Nú heilsan öll í rétta átt hjá litlu kútunum okkar. Þórir fór á leikskólann í fyrsta sinn síðan fyrir þarsíðustu helgi og Ellert Orri er kominn heim af spítalanum. Hann verður einhvern tíma að ná sér en hann er kominn yfir það versta.

Mig langaði að segja frá skemmtilegu samtali sem við Þórir áttum í gær. Hann er mjög iðinn við að vera í leikjum þar sem hann býr til sögusviðið, er s.s. með mjög frjótt ímyndunarafl.  Svona samtal áttum við í gær:

Þórir: Ég er farinn í vinnuna (og labbar að útidyrunum)

Ég: Hvar ertu að vinna?

Þórir: Í gulu vinnunni (gulur er s.s. uppáhalds liturinn hans).

Ég: Og hvað gerir þú í gulu vinnunni?

Þórir: Baka peninga….

Unglingsskottið er þessa stundina að safna auglýsingum í eitthvað blað fyrir MR. Hlakka til að heyra meira um það. Þar held ég að hún gæti verið á réttri hillu.  Svo ætlar hún í skíðaferðalag til Akureyrar um næstu helgi.  Gaman að vera ungur og leika sér.  Spurning samt hvort hún eigi hrein föt til að vera í á morgun……….döhhhh…….aukaatriði að hennar mati……

Meira síðar – Ína

Fréttir af Rokkfjölskyldunni
Kæru vinir og vandamenn,

Það eru liðnir ár og dagar síðan ég hef fundið tíma til að blogga á opinbera heimasíðu Rokkfjölskyldunnar en núna sofa synir mínir báðir. Sá minni í ömmustól því hann er svo kvefaður og sá stærri í kassa sem við erum búin að útbúa sem rúm. Það er auðvita bara leik-rúm en hefur vakið mikla lukku á heimilinu.

Síðan ég skrifaði hér inná síðast hefur bæst nýr gullmoli í fjölskyldunna en þann 20. janúar klukkan 21:00 fæddist okkur annar sonur. Hann var 3.815 grömm og 51,5 cm. Að sjálfsögðu var hann ferlega fallegur og flottur með dökkt hár og dökk augu.  Augun hafa ekki enn fengið sinn endanlega lit en í dag eru þau dökk gráblá.  Þann 21. febrúar fékk sá stutti nafn og er það Ellert Orri (Ínuson Rokk).  Ellert er í höfuðið á Ella bróður en Orri bara út í loftið.  Það má kalla hann Ella, Ellert, Ellert Orra eða bara Orra. Hef samt á tilfinningunni að það verði Elli sem festist við hann.  Elli bróðir var skírnavottur og þegar við komum í kirkjuna báðum við hann um að halda á honum undir skírn. Okkur sýndist þetta koma honum skemmtilega mikið á óvart.Elli var ansi duglegur að sofa fyrstu 18 daga lífs síns og við héldum bara að þetta yrðu náðugir dagar hjá okkur. Reyndar þyngdist hann illa og því var hann undir sérstöku eftirliti. En á 18. degi

kom í ljós að Elli var með þvagfærasýkingu og hita og var friðurinn þá úti – sem betur fer.  Elli og Kidda þurftu að vera eina nótt á spítala og fékk hann pensilín í æð. Þurfti hann að vera á pensilíni í viku og virðist það hafa unnið bug á sýkingunni. Síðan hann fór á pensillínið hefur drengurinn aldeilis lifnað við og rifnað út. Okkur grunar að hann hafi þyngst um kíló á þessum tæpu 3 vikum síðan hann byrjaði á pensilíni.  Litla skinnið er þó búinn að næla sér í RS vírus og liggur núna inná Barnaspítala Hringsins með mömmu Kiddu.

Þórir Sólbjartur er besti stóri bróðir sem hægt er að hugsa sér. Hann er alltaf blíður og góður við hann og í morgun reyndi hann meira að segja að gefa honum brjóst því hann var að gráta og Þórir var viss um að hann væri svangur (ég hélt á Ella  ). Þórir er búinn að vera á leikskólanum Lækjaborg síðan í júlí og unir hag sínum vel þar.  Á þessum tíma er hann orðinn altalandi og ekki nóg með það heldur kann hann óteljandi mörg lög (orðrétt) sem hann syngur hástöfum fyrir okkur.  Dýrleif er ennþá besta vinkona hans (eða vínkona mín eins og Þórir segir) og fóru þau saman á tónlistarnámskeið fyrir jól.  Við héldum ekki áfram eftir jól því það er svo mikið að gera hjá mömmunum en við stefnum á að taka upp þráðinn fljótlega.  Þórir er nefnilega afskaplega músikalskur og hefur t.d. mjög mikinn áhuga á geta spilað á gítar. Hann fékk einn slíkan í jólagjöf og þegar hann var spurður hvað hann fékk í jólagjöf sagði hann alltaf bara gítar þó hann hafi fengið fullt af öðrum flottum hlutum. Þórir er einnig sérlegur áhugamaður um matseld og bakstur og vill hann ALLTAF hjálpa þegar við erum að elda eða baka. Reyndar hefur hann ekki bara áhuga á því heldur hjálpar hann líka að ganga frá og hefur hann mikið frumkvæði að því að laga til og ganga frá. Hann setur t.d. oftast diskinn sinn í vaskinn þrátt fyrir að við höfum aldrei kennt honum það.  Vonandi eldist þessi snyrtimennska ekki af honum. Þórir er líka alveg rosalega mikill ömmu og afastákur og elskar að leika við ömmur sínar og afa í báðum ættum.

Laufey Ebba er að verða fullorðin eða það finnst henni a.m.k.  . Laufey byrjaði í MR í haust og unir hag sínum þar vel.  Það voru talsverð viðbrigði að byrja í MR en henni er að ganga vel með námið.  Laufey er ennþá að vinna í Nóatúni og hefur nú unnið þar í 2 ár við góðan orðstýr. Svo er hún Laufey mín farin að kíkja aðeins á böllin og svona eins og aldurinn segir of til um. Hún er ekki alveg jafnmikið nörd og mamma sín, sem betur fer kannski. Það virðist allvega voða gaman að vera unglingur  .

Kidda byrjaði í félagsráðgjöf fyrir ári síðan og er hún að finna sig alveg svakalega vel og gengur alveg svakalega vel í náminu.  Hún er að taka 2 kúrsa núna ásamt því að vera í foreldraorlofi en satt best að segja hefur hún ekki fengið mikinn tíma til að læra þar sem strákarnir hafa skiptst á að vera veikir. Svo er stór dagur hjá Kiddu minni í dag en hún er búin að vera edrú í 5 ár.  Til hamingju með það elsku Kidda mín, þú ert algjör snillingur og langbest.

Sjálf kláraði mastersnám í fjármálum fyrirtækja í desember og útskrifaðist þann 23. janúar.  Ég ku víst hafa dúxað í náminu og fékk verðlaun fyrir… Ég er enn að vinna sem fjármálastjóri fyrir Verne (gagnaverið í Keflavík) en er bara í 50% vinnu og í 50% foreldraorlofi. Það veitir víst ekki af því að hafa 2 foreldra heima þegar maður á 2 gutta með svona stuttu millibili.  Sérstaklega þegar veikindi herja á heimilið.

Annars erum við farin að hlakka mikið til sumarsins og er stefnan tekin á að ferðast mikið með tjaldvagninn. Svo er ættarmót hjá fjölskyldu afa Steina á Hóli þann 9. til 11. júlí í sumar. Þar verður ekkert smá stuð

Að lokum langar mig að þakka öllum sem hafa glatt okkur og hjálpað í tilefni fæðingar og skírnar Ellerts Orra.

Ást og friður

Ína

Ps. Kidda virðist ekki hafa festst á filmu síðan Ellert Orri fæddist en ég læt hér fljóta með mynd af okkur Þóri með ömmu Mæju sem var svo óheppin að mjaðmagrindabrotna í byrjun árs og hefur legið á sjúkrahúsinu í Keflavík síðan.  Við sendum henni batakveðjur.  Svo eru fullt af fleiri myndum inná http://www.flickr.com/photos/rokkfamily.

Nýr prins af Rauðalæk
Það hefur ekki mikið verið skrifað á heimasíðu Rokkfjölskyldunnar undanfarið ár eða svo.  En nú er sko tilefni til að taka upp lyklaborðið og segja fréttir.  Við Kidda verðum brátt þriggja barna mæður. Réttara sagt munum við bráðum eiga tvö börn og einn ungling  .  Kidda gengur sem sagt með dreng sem áætlar að koma í heiminn þann 18. janúar 2009.   Spennan á heimilinu er í hámarki og er alveg ótrúlegt hvað hvert hvert barn er mikil gleðigjöf.   Þetta er eitt af því sem er alltaf jafn ánægjulegt.  Hér koma nokkrar myndir af prinsinum:

15/6/2009:

Hér er lillinn ekki nema rétt rúmlega rækja

9/7/2009:

Hérna er ég 12 vikna að vinka mömmum mínum.

1/9/2009:

Lillinn var í þvílíku stuði og vinkaði okkur heilmikið.

Hér virðist hann vera að blása tyggjókúlu en þetta er víst bara naflastrengurinn.

Hér veifar hann okkur með tásunum sínum.

Við erum búnar að fara í öll tékk og allt lítur vel.  Fyrstu 10 vikurnar var hún hálfgert hliðarsjálf sökum ógleði og slappleika en hristi það snarlega af sér  eftir rúmar 10 vikur.  Kidda er núna svaka hraust og kát og ætlar að byrja í meðgöngujóga fljótlega.

Við munum reyna að setja inn fréttir af meðgöngunni og kannski af hinum fjölskyldumeðlimunum líka á næstunni.

Kærleikskveðja úr Rauðalæknum

Ína, Kidda og börnin