Archive for the ‘Börn’ Category
Vika í að alvara lífsins byrji
Eftir fjögurra mánaða frí og ferðalög þá hefst alvara lífsins að fullum krafti hjá Rokkfjölskyldunni eftir viku. Þá verða allir byrjaðir að vinna og í skóla og litli pjakkur byrjar hjá dagmömmu. Ég er að byrja í nýrri vinnu sem fjármálastjóri Vern holding ehf sem er fyrirtækið sem er að reisa netþjónabú á Keflavíkurflugvelli. Kidda er aftur byrjuð að húsvarðast hjá Samtökum Atvinnulífsins, Laufey er að byrja í 10. bekk í Laugalækjarskóla og Þórir Sólbjartur er að byrja hjá dagmömmu sem heitir Helga Margrét og býr hér rétt hjá. Já og svo byrjar skólinn hjá mér á morgun, er ekki alveg búin að ná því ennþá…..
Við vorum að koma heim úr síðasta ferðalagi sumarsins núna á aðfaranótt laugardags. Vorum í vikuferð til Köben og Gautaborgar. Heimsóttum Jógu systur Kiddu og Guðna manninn hennar en þau búa í Gautaborg og tókum því bara rólega (kíktum samt aðeins í H&M ofl. búðir). Í Köben vorum við í 2 daga og fórum í dýragarð og Tívolí með börnin. Þetta var alveg yndisleg ferð en það var gott að koma heim. Við erum búin að vera á endalausu ferðalagi í sumar. Byrjuðum á að fara til Boston, svo fórum við til Mallorca, svo tóku við útilegur og sumarbústaðaferðir, vorum viku á Bolungavík og 5 daga á Dröngum á Ströndum áður en við fórum í þessa ferð. Þetta er búið að vera alveg einstaklega skemmtilegt sumar enda ekki oft sem maður er í fjögurra mánaða fríi. Kidda er aðeins búin að vera að vinna en hún er búin að vera mikið í fríi líka.
Þórir virðist bara hafa haft gagn og gaman af þessum ferðum en hann verður 10 mánaða eftir 2 daga og er nú þegar farinn að segja nokkur orð s.s. mamma, dudda, út (segir það endalaust og bendir út um gluggann), datt og takk. Hann er líka farinn að standa einn, labba meðfram öllu, labba ef hann er með vagn eða eitthvað fyrir framan sig. Hann klappar, sýnir hvað hann er stór og vinkar. Hann er bara komin með eina tönn en við höldum að það séu að koma fleiri. Reyndar er hann sennilega með handa-, fóta og munn vírus núna en hann hlýtur að fara að hrista hann af sér enda hreystimenni mikið
.
Þar til næst…..kveðja Ína
Ég var að setja inn myndir frá því í júlí: http://www.flickr.com/photos/rokkfamily/. Hér er smá sýnishorn:
Gay Pride er alltaf jafn æðislega skemmtileg
Í gær var þjóðhátíðardagur samkynhneigðra á Íslandi eða Gay Pride. Í okkar fjölskyldu telst þetta hátiðisdagur. Allir fara niður í bæ, snemma, skoða göngumenn og konur áður en lagt er í hann og spjallað við vini og kunningja. Síðan er labbað niður laugaveginn í hátíðarskapi. Maður fyllist alltaf jafn mikilli gleði yfir öllu fólkinu sem er komið til að gleðjast með okkur og styðja við bakið á samkynhneigðum. Ég (Ína) hef nú tekið þátt í öllum hátíðarhöldum og göngum frá árinu 1999 og ég held að það hafi aldrei verið jafn margir niðri í bæ og í gær. Það var hreinlega fólk alls staðar og maður komst varla fyrir á Arnarhóli til að fylgjast með skemmtiatriðunum.
Um kvöldið fórum við með góðum vinum út að borða á Sjávarkjallaranum og það var alveg meiriháttar. Góður matur og mikið flissað. Að lokum skelltu hjónakornin sér á ball á Nasa og var það æðislega gaman. Páll Óskar er náttúrulega bara æði. Reyndar fannst mér (Ínu) bassinn stilltur full hátt því húsið nötraði og skalf en sennilega er þetta ellimerki. Fórum af Nasa þegar okkur fannst fólk orðið of fullt og búið að hleypa allt of mörgum inn. Kíktum aðeins við á Organ en vorum komnar upp í rúm rúmlega hálf þrjú.
Laufey passaði Þóri með aðstoð Hörpu vinkonu sinnar og gisti hann inni hjá þeim þannig að mæðurnar gátu sofið aðeins út. Það er svo frábært að eiga svona góða dóttur sem er hægt að treysta svona vel
.
Þórisupdate: Þórir er u.þ.b. 9,5 mánaða. Hann er kominn með fyrstu tönnina en mamma Ína fann hana á fimmtudaginn 7. ágúst klukkan 5. Tönnin sést þó ekki ennþá en það heyrist greinilega í henni. Hann er byrjaður að sýna hvað hann er stór og klappar alveg svakalega vel, hann byrjaði á þessu hvoru tveggja á Hóli 25. – 30. júlí. Hann stendur upp og sest niður hvar og hvenær sem er og er aðeins byrjaður að labba með. Hann skríður um allt og gerir það eins og mælt er með, hann er sem sagt hættur að skúra gólfið með bubuunni (skreið áður eins og selur). Þórir kanna að segja þrjú orð alveg greinilega það eru mamma, dudda og út. Allt mjög mikilvæg orð í lífi hans. Já og eins og sést á myndunum þá er hann ekki lengur rauðbrúnhærður heldur algjör glókollur.
Loksins eru allar myndirnar frá Spáni komnar inn en það gerðist í nokkrum atrennum (sjá hér: http://flickr.com/photos/rokkfamily/) Það koma seinna myndir frá Gay Pride, útilegum, ættarmóti Hannesarættarinnar, sextugsafmæli pabba (Hannesar), dvöl á Hóli á Bolungavík og síðast en ekki síst frá ferðinni okkar að ströndum. Þetta er bunki af 500 myndum sem þarf að sortera, yfirfara, skerpa á og loks setja á netið. Þetta tekur allt sinn tíma en stefnt er að því að setja þetta inn áður en alvara lífsins byrjar í lok ágúst þ.e. vinna og skóli…..Þórir byrjar einmitt hjá dagmömmu 1. sept.
Sýnishorn af myndum frá Spáni:
Skyndiblogg
Elsku vinir, fjölskylda og aðrir sem ramba inn á síðuna.
Það er allt meiriháttar að frétta af rokkfjölskyldunni. Við erum bara allt of uppteknar til að blogga. Á milli þess sem við eltum orminn okkar (lesist Þóri Sólbjart) þá erum við á faraldsfæti. Búnar að fara til Boston og Spánar og svo skelltum við okkur á nýjan tjaldvagn um daginn og erum búnar að vera í 2 mögnuðum útilegum. Í annarri lentum við í hitabylgju en í hinni í “flóðbylgju”, það var svo mikil rigning.
Þórir Sólbjartur dafnar svakalega vel, jafnvel of vel. Hann er byrjaður að safna smá ístrubelg sem hann skautar um íbúðina á. Hann skríður nefnilega ekki eins og flestir krakkar heldur ormast hann um með því að draga sig áfram á bumbunni og tærnar hjálpa líka til. Á Spáni tók hann svo massa miklum framförum að við ákváðum að pakka göngugrindinni þannig að hún hefur ekki verið í notkun í 2 mánuði núna. Það er ekki enn komin tönn þó hann sé að verða 9 mánaða eftir nokkra daga. Hárið sem var rauðbrúnt er eiginlega bara hvítt, hann er algjör glókollur (þið sjáið það betur í næstu myndaseríu sem ég ætla að reyna að setja inn í næstu viku).
Það eru komnar inn myndir frá því í maí en þá fórum við m.a. til Boston með Thor Sunshine og slóg hann feitt í gegn hjá Könunum…. Við ætlum að reyna að setja inn myndir frá júní (t.d. Spáni) áður en við förum í næsta langa ferðalag en á fimmtudaginn höldum við í tveggja vikna ferðalag um Vestfirði og Strandir. Byrjum á Bolungavík þar sem fjölskyldan mín (Ínu) á hús og ferðumst eitthvað út frá því og förum svo á Dranga á Ströndum þar sem fjölskylda Kiddu á hús. Erum núna á leiðinni á Laugavatn í sextugsafmæli föður míns sem á afmæli á morgun. Þar verður slegið upp mini útihátíð.
Video af Poja í baði (pínu gamalt)
Þar til næst…..









































