Archive for the ‘Börn’ Category
Spennandi tímar framundan
Mig langar að byrja á að þakka kærlega fyrir allar kveðjurnar bæði hér á síðunni og með SMS í tilefni afmælisins míns og prófloka sem vill nú svo skemmtilega til að voru sama daginn (28. apríl). Í tilefni dagsins brugðum við stelpurnar okkur af bæ og fórum á Tapas barinn. Þar rifjuðum við upp góða takta frá því í ferðalagi okkar um Spán í fyrra. Við pöntuðum okkur 12 rétti, Laufey var strax með á hreinu hvað hún vildi. Hún pantaði sér kengúru, pírí pírí kjúkling, hvítlaukssnigla og patatas bravas. Kidda var á hefðbundnari nótum, lamb í lakkríssósu, nautakjöt í teríakí sósu, humar í hvítlauk og túnfiskur. Ég fékk hins vegar 4 rétti að vali kokksins og fékk reyktan lunda í bláberjabrennivínssósu, hörpuskel í beikondöðluvafningi, lambaspjót og humar/hörpuskel í einhverri gratineringu. Þetta var allt meiriháttar gott en við vorum þó sammála um að lundinn stóð uppúr, þá hörpuskelin í beikondöluvafningi og kengúran. Namminamminamm….. vonandi verður góður tapas staður þar sem við verðum á Mallorca í sumar.
Já við rokkfjölskyldan erum sem sagt að fara að bregða fyrir okkur betri fætinum í sumar. Ferðalögin byrja reyndar strax í á morgun (4. maí) en þá fer ég til New York og þaðan til Boston á námskeið í persónulegum fjárfestingum. Kidda og Þórir munu svo koma til Boston á fimmtudaginn og þá verður tekið á því í búðunum. Þórir verður bara ólaður niður í vagninn og við örkum af stað….Laufey greyjið verður skilin eftir heima þar sem hún er hætt á brjósti en hún fær kannski sokkapar til að bæta það upp. Heimkoma 13. maí.
28. maí verður síðan haldið til Mallorca í boði ma og pa a la grande í Innri Njarðvík town. Þau eru sem sagt að verða sextug í sumar og ákváðu að bjóða “hele familien” með í utanlandsferð. Þetta verða s.s. 2 ömmur, mamma og pabbi, systkyni mín 3, einn maki og 14 börn á aldreinum 6 mánaða til 14,5 árs. Já og síðast en ekki síst Lilja móðursystir
. Við verðum á Mallorca í 3 vikur en fyrstu vikuna verðum við bara með Ella og er planið að taka ferju til Barcelona og gista þar eina nótt.
Síðar í sumar er stefnan tekin á Dranga, í Bolungavík, á ættarmót og til Gautaborgar. Og hvað þurfa konur ekki að vinna? Ég er s.s. hætt hjá HugAx og er með tvennt annað í pípunum sem ekki er hægt að segja frá strax. Sumarið verður sem sagt hlaðið orlofi. Ekkert smá gaman.
Ég veit að margir kíkja inná síðuna til að fá fréttir af Þóri litla Sólbjarti Ínusyni Rokk og loksins koma þær. Loksins er drengurinn orðinn kenndur við Ínu mömmu sína eftir smá þras við þjóðskrá. Það virðist hið flóknasta mál að fá hann kenndan við hina mömmuna, þeir krefjast skriflegrar yfirlýsingar frá læknastofunni og okkur og alls kyns rugl. Hins vegar ef kona heldur fram hjá manninum sínum þá verður sá lausaleikskrói sjálfkrafa kenndur við eiginmanninn og enginn er spurður að neinu. Sem sagt allt of flókið kerfi utan um ekki neitt.
Þórir varð 6 mánaða núna 27 apríl og er orðinn algjör gaur. Hann tók fyrstu veltuna á eigin vegum þann 11. apríl en núna veltir hann sér hring eftir hring í báðar áttir. Hann er líka farinn að sitja og svo labbar hann um allt í göngugrindinni. Svo ég tali nú ekki um hvað hann er sjúklega handóður. Ég veit ekki hvort þetta sé alveg normal fyrir ekki eldra barn, mér finndist hann allavega alveg mega vera lilli dúlli aðeins lengur
. Hann er líka farinn að borða fjölbreyttari fæðu, kartöflur og grænmeti, ávexti og grauta. Það bólar hins vegar ekkert á tönnslunum sem við vorum sannfærðar um að kæmu snemma. Hann er s.s. tannlaus greyjið…..
Þórir er þó alveg einstaklega tillitsamur. Til að mynda þá varð hann veikur í fyrsta skipti eftir hádegi daginn sem ég kláraði prófin. Við Þórir erum því búin að vera tvö innilokuð alla vikuna því Kidda var að leggja parket og fleira. Hann er nú allur að koma til núna en við þurftum að fá smá púst fyrir hann. Eyrun hafa þó sloppið hingað til 7-9-13. Það er algjör lúxus að vera með heimilislækni í fjölskyldunni sem getur tékkað á því þegar mömmurnar fá panic attac.
Ég er að vinna í því að hlaða inn myndum frá því í mars en það tekur heila eilífð. Gæti verið vegna þess að tölvan er þráðlaus, er þó ekki viss. Kíkið endilega beint á myndasíðuna okkar http://www.flickr.com/photos/rokkfamily/.
Þeir sem eru enn að lesa eru ekkert smá duglegir því þetta er orðin svakalega langur texti en svona er það þegar maður er of upptekinn til að blogga reglulega.
Kveðja frá Rokkfjölskyldunni – Ína Björk
Þórir Sólbjartur í hláturskasti
Jæja, ekki er bloggáhuginn að drepa mann þessa dagana en hins vegar hættir maður aldrei að vera nörd…. áhuginn á blogginu kviknaði snarlega fyrr í kvöld þegar eiginkonan lýsti því fyrir mér hversu sárt Jóga mágkona saknaði Þóris og að hana langaði svo ógurlega að sjá af honum mynd eða myndband. Við hjónurnar settumst því við tölvuna og fundum út hvernig við gætum útbúið myndband, hvernig hægt væri að setja það inn á Youtube og svo var síðasta skrefið að finna forrit sem gæti tengt bloggið okkar við youtube og viti menn þetta hófst allt að lokum. Frumraunin er hér fyrir neðan, myndband af Þóri Sólbjarti frá því fyrr í dag þar sem hann er í miklu hláturskasti. Held að hláturskastið hafi að hlutatil verið svefngalsi því hann var orðinn svo þreyttur en skemmtilegur var hann kúturinn. Nú getið þið átt von á reglulegum fréttum af rokkfjölskyldunni úr því að við erum orðnar svona tæknivæddar.
Stefnum á að setja ljósmyndir frá febrúar og mars inn á morgun en hér er að finna myndir frá því í janúar ef þið hafið ekki þegar séð þær: http://flickr.com/photos/rokkfamily/tags/jan%C3%BAar/
Friður sé með ykkur öllum – Ína
Þórir Sólbjartur 3 mánaða
Jæja sælt veri fólkið !
Rosalega sem maður getur láti það vaxa sér í augum að blogga…En fyrst að Svanfríður er farin að rukka um blogg þá er best að drífa í þessu..
Lífið er ótrúlega ljúft á Rauðalæknum. Þórir er 3 mánaða í dag og er orðin ótrúlega stór. Hann byrjaði daginn á því að pissa á báðar mömmur sínar. Fyrst á mömmu Rokk og svo lét hann vaða á móðir Ínu. Hann er sjúklega hress þessi strákur. Annars veit ég eiginlega ekki hvað ég á að skrifa næst. Í raun er lítið að frétta af mér. Maður er bara með son sinn á heilanum og talar ekki um mikið annað. Það er kannski bara gott að ég hitti ekki marga þessa dagana. Er í raun búin að skipta nett um karakter. Einu sinni voru áhugamálin konur og vín en nú er öldin önnur. Mín mesta upplyfting þessa dagana eru bónusferðir og áhugi minn liggur aðalega í því hvort Þórir sé búin að kúka eða ekki. Fyrir almúgan hljómar þetta sennilega frekar ömurlega. Hugsanlega er fólk þarna úti sem hugsar, æj æj aumingja Kidda að vera komin í þennan pakka. Ég verð að segja að aldrei hef ég samt verið jafn hamingjusöm og ég er nú. Núna skil ég hvað hún mamma mín var að meina þegar hún sagði “besta tilfinning í heim er þegar börnin manns liggja hrein og sofandi í rúminu sínu”. Ég er gjörsamlega að tengja við þetta. Þakklæti og virðing til gaursins.
Það er frábær tilfinning þegar lífið fer að snúast um einhvað mikilvægara en t.d hvort rífa eigi skemmtistaðinn Sirkus eða ekki. Þokkalega sem ég hefði þurft að anda í brúnan bréfpoka yfir þeim fréttum á einhverjum tímapunkti, Hjálp.
Ég ætla að enda þetta blogg mitt á þessum sannleikskornum.
Lífið er lag, senn við syngjum sama tvö dag eftir dag.
Friður Kidda
P.s Þórir er farin að hlægja, hann er geðveikur töffari