Archive for the ‘Ferðalög’ Category
Gemsinn okkar á Spáni er
Ef einhver hefði áhuga á að hringja í oss þá er gemsa númerið okkar 00-34-664-105-568.
Ástarkveðja til ykkar allra.
Ína
Mucho, mucho calor
Góðan og blessaðan daginn. Bloggið okkar er í tómu tjóni en nýjar færslur viðast koma rétt fram svo ég ætla ekki að láta þetta stoppa mig í að blogga.
Nú er spænskunámi fjölskyldunnar alveg að fara að ljúka en það eru 2 dagar eftir hjá okkur. Ég verð að segja að fyrir mitt leiti þá hefur námið verið miklu skemmtilegra en ég átti von á. Kennararnir eru mjög skemmtilegir og það er alveg ótrúlegt hvað maður skilur mikið. Við höfum líka kynnst frábæru fólki frá ýmsum heimshornum. Fyrst ber að telja Elisabeth og Mary Frances frá Texas. Tvær frábærar konur, 55 ára og 66 ára. Báðar eru þær kennarar í grunninn en Elísabet er líka tónlistarmaður og listmálari og María er bóndi í hjáverkum, fjölskyldan hennar á pecan hnetu búgarð. Þær búa í mjög litlum bæ, rétt við landamæri Mexíkó og einhvernvegin þá hljómaði Texas spennandi, þótt ótrúlegt megi virðast. Elísabet og María héldu ferð sinni áfram á laugardaginn en þær fóru til Sevilla þar sem þær munu læra Spænsku í viku í viðbót áður en þær bregða sér yfir til Marokkó í viku. Við söknum þeirra geðveikt því þær voru svo skemmtilegar, minntu mig um margt á Bettý “mömmu” mína frá Chicago. Svo ótrúlega ólíkar hinum típíska ameríkana.
Síðan höfum við kynnst Namalee sem er frá Nýja Sjálandi, ættuð frá Sir Lanka en býr í London. Hún er viðskiptafræðingur og lögfræðingur og vinnur við skattamál. Síðan er það Kristína sem er dönsk en býr í Noregi. Hún er að læra hjúkrun en vann lengi við að gera upp antíklistaverk. Og Charlie sem er breskur kennari en býr í Atlanta í Bandaríkjunum. Við höfum aðeins verið að “hanga” með þessum konum, skoða okkur um og fara út að borða. Við fórum t.d. með Elísabetu, Maríu og Namalee að skoða Alhambra höllina en það er ca. 800 hundruð ára gömul arabahöll, mjög flott og allt það en mér finnst arabískur stíll svo ópersónulegur. Aldrei neitt sem minnir á fólk, bara munstur. Við fórum líka með þeim upp í 3 fjallaþorp sem eru líka eldgömul og eru kölluð Las Albujarras og eru í Sierra Nevada fjallgarðinum. Efsta þorpið sem við heimsóttum var í ca. 1433 metra hæð en fjallgarðurinn er mun hærri. Á veturna eru þarna vinsæl skíðasvæði. Það virðist ótrúlegt í þessum mikla hita sem er núna en það er samt satt. Meira að segja sést smá snjór efst í fjallinu þó það sé hátt í 40 stiga hiti niðri í Granada. Granada var eitt síðasta vígi araba á Spáni en Arabar réðu yfir Spáni í ca 700 ár eða allt til ársins 1492. Það er óhætt að segja að Granada beri þess merki því stíllinn hér er mjög arabískur og hér er arabísk arfleifð í heiðri höfð. Á laugardaginn ákváðum við Kidda að sofa út og eiga rólegan dag. Við gengum um bæinn í svakalegum hita, borðum ís og skoðuðum aðeins í búðir. Ósköp notalegur dagur. Laufey fór með skólanum upp í Las Albujarras en kom svo og gisti hjá okkur á hótelinu. Við fórum snemma að sofa því ferðinni var heitið á ströndina í Nerja daginn eftir. Við vorum allar steinsofnaðar þegar einhver sem ég elska mjög mikið hringdi, fattaði ekki tímamuninn. Ég var pínu svefnþrungin og vona að ég hafi ekki verið mjög dónaleg en ef svo er þá biðst ég innilegrar afsökunar.
Morguninn eftir borðuðum við góðan morgunverð á hótelinu og lögðum svo af stað til Nerja sem er í 100 km fjarlægð. Það segir samt ekki alla söguna því hér er svo mikið fjalllendi að vegirnir eru ekki beinir nema í smá stund og því ekki hægt að keyra á eðlilegum hraða. Með okkur í för var Darri sem er líka í unglingaprógramminu. Hann er 3 árum eldri en Laufey en voðalega fínn strákur og hann nennir að hanga með Laufeyju J þó hún sé mikið yngri…Ferðin tók 1,5 tíma hvora leið en var algjörlega þess virði. Nerja er mjög fallegur bær, hreinn og snyrtilegur og ströndin frábær. Reyndar var einhver sumarhátíð á Spáni um síðustu helgi svo fullt af ungu fólki tjaldaði á ströndinni alla helgina og skemmti sér. Það truflaði okkur samt ekki neitt.
Þessa vikuna erum við Kidda á sitt hvorum tímanum í skólanum og er það frekar glatað. Ég er milli 9 og 13 og hún milli 15 og 19. Þar af leiðandi er ósköp erfitt að nýta tímann til að gera eitthvað markvisst. En sem betur fer var þetta ekki svona í síðustu viku, þá vorum við á sama tíma. Við “neyðumst” því til að koma aftur til Granada og skoða það sem við höfum ekki náð yfir í þessari ferð. Annars getum við algjörlega mælt með Granada við fólk sem vill kynnast Spáni þar sem er ekki allt vaðandi í túrisma. Augljóslega er fullt af túristum hér eins og alls staðar á Spáni en það eru frekar túristar sem eru hér að læra enda er þetta mikill háskólabær eða túristar sem koma til að skoða menningarverðmæti. Hér er nefnilega engin strönd….það er aldrei að vita nema við eigum eftir að koma aftur hingað. Nú er Kiddulingurinn komin heim úr skólanum og við á leið á straujið.
Hasta luego!
Ína
Ps. Koma svoooo og kommenta!!!!!!
Granada
Kæru vinir. Ótrúlega gott að frétta héðan frá Granada. Maður er bara skítfallin fyrir þessari litlu og sætu borg. Það sem er kannski best við hana að það er ekki allt vaðandi í túrisma hérna. Fæstir tala ensku þannig að maður verður bara að bjarga sér á spænsku. Það gengur svona mis vel, en maður er alltaf að verða betri og betri. Ég finn alveg yfirnáttúrulega mikinn mun á mér síðan ég byrjaði í skólanum fyrir viku síðan. Þegar ég mætti í fyrsta daginn í skólann þá skildi ég ekki eitt aukatekið orð. Ég starði bara tómum augum á kennarann og bölvaði í hljóði en núna er ég sko miklu brattari. Ég er allavegana farin að skilja svona megnið af því sem talað er um í tímum þó svo að ég geti nú kannski ekki tekið þátt í gáfulegum samræðum á spænsku.Nú er að hefjast ný vika í skólanum og því miður þá erum við Ína ekki á sama tíma þessa vikuna. Hún er á morgnana en ég er eftir hádegi. Ég sem sagt hefði getað sofið út í morgun, en sökum sjúklegs hressleika þá vakanaði ég um leið og Ína, og fór að æfa mig í spænsku og svo fannst mér kjörið að blogga aðeins.Í gær fórum við á æðislega strönd í bænum Nerja. Mjög fallegur hvítur bær ekki svo langt frá Malaga. Við áttum frábæran dag lágum bara og lásum og slöppuðum af í sólinni. Þetta er þvílíkt sældarlíf.Jæja elskurnar ætla ekki að hafa þetta lengra í þetta sinn.
Lifið heil
Þangað til næst
Kiddarokk