Archive for the ‘Ferðalög’ Category
¿Comó Está usted?
Þegar við komum til Granada, vorum við eina nótt á hóteli með Japönum sem skemmtu sér við að fara upp og niður í lyftunni, því úr henni var mjög gott útsýni yfir bæinn. Getiði nú uppá hver varð pirruð og kvartaði við hótelstjórann. Ef þið fattið það ekki þá var það ólétta konan sem hefur engan þráð þegar óþolinmæðin tekur völdin (þessa dagana). Hún gjörsamlega tapaði glórunni en sem betur fer þá var önnur lyfta en röðin í hana var löng. Við gátum þó hlegið að þessu eftirá J. Daginn eftir keyrðum við barnið til fjöldunnar sem hún mun dvelja hjá á meðan við erum í skólanum. Tók á móti henni mjög yndisleg kona og er Laufey mjög ánægð hjá henni þrátt fyrir að hún tali ekki stakt orð í ensku. Laufey reynir samviskusamlega að tala við hana á spænsku og gengur það að okkar mati mjög vel enda er hún ekki mikið fyrir þögnina…Laufey borðar hjá henni, þrisvar á dag, hefðbundinn spænskan mat sem hún eldar eftir spænsku matarrásinni sem er í sjónvarpinu daglega. Við hjónurnar áttum svo bókaða gistingu á heimavist skólans, hjómar sakleysislega – ekki satt. Við sáum fyrir okkur bara svona venjulega heimavist, enga íburði en samt allt svona sirka hreint og flott. En viti menn, þegar við komumst loks á leiðarenda, seint um kvöld, eftir að hafa keyrt um mjög þröngar götur með yfirgefnum húsum þá tók á móti okkur stór kakkalakki (4-5 cm að lengd), þungt loft (engin loftræsting eins og var lofað) og fullt af skít. OK við vorum frekar óttaslegnar og þegar okkur var vísað til herbergist þá leið okkur eins og við værum komnar í fangelsi. Ekki var herbergið stórt, rúmin gömul, léleg og skítug, skítug lök fylgdu með, ojjj bara þetta var algjör viðbjóður. Þegar við vorum búnar að fara og fá okkur fanta og róa aðeins taugarnar þá ákváðum við að kanna hvernig staðan á hótelmarkaðnum væri. Við leituðum að hóteli með útisundlaug og viti menn við sáum mjög ódýrt 4* hótel (svipað verð og fyrir ógeðisheimavistina) og við bókuðum 2 nætur í einum grænum hvelli. Þetta gat bara verið betra. Við slógum heimilisfangið inn í GPS græjuna og létum hana leiða okkur að hótelinu. Þegar þangað var komið, kom í ljós hið stórglæsilegasta hótel og ég held við höfum aldrei verið eins ánægðar með nokkurn dvalarstað. Við erum s.s. í skýjunum á þessu yndislega hóteli (sjá http://www.granadahotelsaray.com/). Í bónus (vissum það ekki þegar við bókuðum) þá erum við í næstu götu við Laufeyju og þarnæstu götu við skólann eða hér um bil. Lífið leikur við okkur.Nú erum við búnar að vera 3 daga í Spænskuskólanum og við erum að skemmta okkur konunglega. í mánudaginn var skipt í hópa og lentum við (Ína og Kidda) ekki saman í hóp en vorum þó svo heppnar að vera á sama tíma í skólanum. Laufey er í unglingaprógramminu og er það einnig á sama tíma (9-13) en hún virðist ekki eiga neinar mæður þessa dagana því þrátt fyrir að við reynum stundum að heilsa henni þá horfir hún bara í gegnum okkur, stóreygð og dálítið fött….. ína er, sökum einstakrar spænskukunnáttu, í næstlélegasta bekk skólans og er að læra allt um mat þessa dagana. Kidda er hins vegar í tossabekknum og er að læra að segja nafnið sitt á spænsku (þ.e. Kristin). Kidda er samt sem áður mjög dugleg í skólanum og fá þau syngja þegar þau hafa verið dugleg. í dag t.d. söng hún dúett með Jose Carreas, lagið Granada.Við höfum kynnst alveg ótrúlega skemmtilegu fólki og þá ber sérstaklega að telja 2 konur/ömmur frá Texas sem eru ótrúlega flippaðar. Þær eru líka í 5 vikna ferð og dvöldu eina viku í Barcelona og lærðu spænsku, verða eina viku hér og læra spænsku og eina viku í Sevilla. Þær búa alltaf hjá Spænskum fjölskyldum. Við erum svolítið að hanga með þeim.Jæja best að fara að borða meira tapas. Hasta luegoK-Ína
Ferðin hafin
Í gær blogguðum við stóru og feitu bloggi sem þurrkaðist út þegar við ýttum á Publish. Það var ekkert smá pirrandi. Nú ætlum við að reyna aftur
Erum rétt nýbúnar að jafna okkur á þessum vonbrigðum.Ferðalagið gekk eins og í sögu, góð flugferð og Ína var ekkert hrædd, sem er nú frekar spes. Hún var bara hin brattasta. Á flugvellinum beið okkar ótrúlega fagur Citroen C4, svartur að lit og nú keyrum við um sveitir Spánar eins og súperstjörnur. Við byrjuðum ferðina á því að villast frekar feitt, þrátt fyrir að vera með GPS tæki. Það var samt sem áður bara frekar hressandi. Þegar við loksins komum á hótelið þá urðum við sko ekki fyrir vonbrigðum. Við okkur blasti sjúklega flott og vel hannað hótel í alla staði. Það eina sem var kannski skrítið var staðsetningin. Hótelið var í miðju iðnaðahverfi, þannig að maður var ekki alveg viss um að maður væri á réttum stað í byrjun.Í dag vöknuðum við svo endurnærðar eftir góðan nætursvefn, í fyrsta skiptið í marga daga. Það var frekar mikil streita dagana áður en við lögðum í þetta langferðalag.Um hádegi keyrðum við síðan af stað til Granada og klikkaði Garmin, græjan (GPS tækið) ekki í þetta skipti. Reyndar var tækið meira en lítið nákvæmt. Ferðalag dagsins var 340 km og í upphafi ferðar áætlaði tækið að við kæmum á áfangastað klukkan 16:05 og viti menn, við komum akkúrat á þeim tíma.Í dag erum við svo búnar að vera að spóka okkur um bæinn. Okkur lýst alveg ferlega vel á Granada. Við eigum eftir að dvelja hérna næstu 2 vikurnar. Unglingurinn okkar mun fara til fjölskyldunnar á morgun, og svo hefst spænskuskólinn hjá okkur öllum á mánudaginn.Jæja nú er komin háttatími og best að fara að leggja sig. Við segjum bara over and out héðan frá Spáni.Virðing Kidda