Archive for the ‘Fjölskyldan’ Category
Spennandi tímar framundan
Mig langar að byrja á að þakka kærlega fyrir allar kveðjurnar bæði hér á síðunni og með SMS í tilefni afmælisins míns og prófloka sem vill nú svo skemmtilega til að voru sama daginn (28. apríl). Í tilefni dagsins brugðum við stelpurnar okkur af bæ og fórum á Tapas barinn. Þar rifjuðum við upp góða takta frá því í ferðalagi okkar um Spán í fyrra. Við pöntuðum okkur 12 rétti, Laufey var strax með á hreinu hvað hún vildi. Hún pantaði sér kengúru, pírí pírí kjúkling, hvítlaukssnigla og patatas bravas. Kidda var á hefðbundnari nótum, lamb í lakkríssósu, nautakjöt í teríakí sósu, humar í hvítlauk og túnfiskur. Ég fékk hins vegar 4 rétti að vali kokksins og fékk reyktan lunda í bláberjabrennivínssósu, hörpuskel í beikondöðluvafningi, lambaspjót og humar/hörpuskel í einhverri gratineringu. Þetta var allt meiriháttar gott en við vorum þó sammála um að lundinn stóð uppúr, þá hörpuskelin í beikondöluvafningi og kengúran. Namminamminamm….. vonandi verður góður tapas staður þar sem við verðum á Mallorca í sumar.
Já við rokkfjölskyldan erum sem sagt að fara að bregða fyrir okkur betri fætinum í sumar. Ferðalögin byrja reyndar strax í á morgun (4. maí) en þá fer ég til New York og þaðan til Boston á námskeið í persónulegum fjárfestingum. Kidda og Þórir munu svo koma til Boston á fimmtudaginn og þá verður tekið á því í búðunum. Þórir verður bara ólaður niður í vagninn og við örkum af stað….Laufey greyjið verður skilin eftir heima þar sem hún er hætt á brjósti en hún fær kannski sokkapar til að bæta það upp. Heimkoma 13. maí.
28. maí verður síðan haldið til Mallorca í boði ma og pa a la grande í Innri Njarðvík town. Þau eru sem sagt að verða sextug í sumar og ákváðu að bjóða “hele familien” með í utanlandsferð. Þetta verða s.s. 2 ömmur, mamma og pabbi, systkyni mín 3, einn maki og 14 börn á aldreinum 6 mánaða til 14,5 árs. Já og síðast en ekki síst Lilja móðursystir
. Við verðum á Mallorca í 3 vikur en fyrstu vikuna verðum við bara með Ella og er planið að taka ferju til Barcelona og gista þar eina nótt.
Síðar í sumar er stefnan tekin á Dranga, í Bolungavík, á ættarmót og til Gautaborgar. Og hvað þurfa konur ekki að vinna? Ég er s.s. hætt hjá HugAx og er með tvennt annað í pípunum sem ekki er hægt að segja frá strax. Sumarið verður sem sagt hlaðið orlofi. Ekkert smá gaman.
Ég veit að margir kíkja inná síðuna til að fá fréttir af Þóri litla Sólbjarti Ínusyni Rokk og loksins koma þær. Loksins er drengurinn orðinn kenndur við Ínu mömmu sína eftir smá þras við þjóðskrá. Það virðist hið flóknasta mál að fá hann kenndan við hina mömmuna, þeir krefjast skriflegrar yfirlýsingar frá læknastofunni og okkur og alls kyns rugl. Hins vegar ef kona heldur fram hjá manninum sínum þá verður sá lausaleikskrói sjálfkrafa kenndur við eiginmanninn og enginn er spurður að neinu. Sem sagt allt of flókið kerfi utan um ekki neitt.
Þórir varð 6 mánaða núna 27 apríl og er orðinn algjör gaur. Hann tók fyrstu veltuna á eigin vegum þann 11. apríl en núna veltir hann sér hring eftir hring í báðar áttir. Hann er líka farinn að sitja og svo labbar hann um allt í göngugrindinni. Svo ég tali nú ekki um hvað hann er sjúklega handóður. Ég veit ekki hvort þetta sé alveg normal fyrir ekki eldra barn, mér finndist hann allavega alveg mega vera lilli dúlli aðeins lengur
. Hann er líka farinn að borða fjölbreyttari fæðu, kartöflur og grænmeti, ávexti og grauta. Það bólar hins vegar ekkert á tönnslunum sem við vorum sannfærðar um að kæmu snemma. Hann er s.s. tannlaus greyjið…..
Þórir er þó alveg einstaklega tillitsamur. Til að mynda þá varð hann veikur í fyrsta skipti eftir hádegi daginn sem ég kláraði prófin. Við Þórir erum því búin að vera tvö innilokuð alla vikuna því Kidda var að leggja parket og fleira. Hann er nú allur að koma til núna en við þurftum að fá smá púst fyrir hann. Eyrun hafa þó sloppið hingað til 7-9-13. Það er algjör lúxus að vera með heimilislækni í fjölskyldunni sem getur tékkað á því þegar mömmurnar fá panic attac.
Ég er að vinna í því að hlaða inn myndum frá því í mars en það tekur heila eilífð. Gæti verið vegna þess að tölvan er þráðlaus, er þó ekki viss. Kíkið endilega beint á myndasíðuna okkar http://www.flickr.com/photos/rokkfamily/.
Þeir sem eru enn að lesa eru ekkert smá duglegir því þetta er orðin svakalega langur texti en svona er það þegar maður er of upptekinn til að blogga reglulega.
Kveðja frá Rokkfjölskyldunni – Ína Björk
Lífið í Rauðalæknum
Það er alltaf verið að skamma okkur fyrir að blogga ekki nógu oft en kannski hefur maður bara ekki frá neinu að segja….
Lífið gengur sinn vanagang hjá okkur í rokkfjölskyldunni. Mamma Ína lærir og lærir eða þannig á það allavega að vera. Ég á bara eftir 2 skólatarnir, næstu 2 helgar, og svo byrja prófin. Síðasta prófið er einmitt á afmælisdaginn minn þann 28. apríl. Það er ekki í fyrsta sinn sem ég klára próf á þeim degi því síðasta samræmda prófið mitt var einmitt 28. apríl árið 1988. Hver myndi nú trúa því? Í maí ætla ég síðan að skella mér í viku skólaferðalag til Boston en þar munum við læra um fjárfestingar og kannski skemmta okkur og versla líka. Það er viðbúið að svefn verði í lágmarki enda fer ég með æðislegu fólki.
Kidda er húsmóðir númeró únó þessa dagana þar sem ég er svo upptekin við námið. Hún er nú hætt að baka í bili enda blésum við út í upphafi árs. Nú er það bara hollustan sem blívar og viti menn, hún Kidda er snillingur í eldhúsinu. Ég er ekkert smá heppin með hana
. Svo er hún í mömmurækt og mannrækt þess á milli.
Laufey okkar er hinn mesti fyrirmyndarunglingur ennþá (7-9-13). Hún er afskaplega vinnusjúk, eiginlega einum of. Hún er að vinna í Nóatúni og í sjoppu og svo passar hún börn. Sem sagt afskaplega dugleg og samviskusöm ung stúlka. Fyrir utan hvað hún er falleg að innan og utan. Við erum s.s. afskaplega heppnar með hana.
Þórir Sólbjartur stendur undir nafninu og er algjör sólargeisli. Hann er mjög rólegur en áberandi mikill húmoristi. Hann á það til að skellihægja svoleiðis af vitleysunni í okkur. Hann sefur allar nætur og er farinn að borða tvisvar á dag. Hann hefur reyndar mjög mikinn áhuga á mat eins og mömmurnar
.
Jæja nóg af okkur í bili, kveðja Ína
Ps. Kommentið endilega….
Fleiri myndir og videó
Heil og sæl, vinir og vandamenn, nær og fjær!
Það er allmikill þrýstingur á okkur að standa okkur betur í að setja inn myndir og fréttir og því er komið að næstu atrennu. Ég var að setja inn 109 ljósmyndir frá því í febrúar (já ykkur var nær að biðja svona mikið um fleiri myndir) og ég get lofað að þær verða engu færri settar inn frá mars mánuði. Sjá: http://www.flickr.com/photos/rokkfamily
Það er samt alveg magnað að fara í gegnum þessar myndir og sjá hvað Þórir hefur stækkað á þessum eina mánuði. Hann er bara orðinn algjör gaur, farinn að borða graut tvisvar á dag og langa til að borða fullorðins mat. Maður sér það á því hvernig hann starir á matinn þegar við erum að borða. Hann virðist ætla að verða matargat eins og mömmurnar. Já og svo er hann loksins farinn að taka pela þegar mamma hans er ekki heima með mjólkurbarinn. Trixið var að nota snuddu sem er með aukagati þar sem loft streymir inn jafnóðum. Hann var ekki alveg að fíla að þurfa að sleppa snuðinu til að hleypa lofti inn í pelann…..
Annars er hann farinn að gera sig líklegan til að fara að velta sér, er farinn að fara alveg á hliðina en svo bakkar hann alltaf aftur til baka af sinni einskæru varkárni. Hann er ekki enn kominn með tennur en slefar þvílíkt og er búinn að gera í 3 mánuði og svo er hann gjarnan með 3 til 8 putta uppí sér í einu. Þórir er alltaf glaður, nema helst í kringum kvöldmatinn því þá vill hann bara fara að sofa. Hann sofnar eins og klukka um hálf níu á hverju kvöldi og sefur í einum dúr fram undir morgun, þá fær hann smá sopa og lúrir á milli þangað til hann vaknar einhverntíman á milli 7 og 9. Sem sagt algjört fyrirmyndarbarn. Mér skilst að hann sé alveg eins og Kidda var, nema hún sofnaði enn fyrr á kvöldin eða í kringum 7 (hún er enn massa kvöldsvæf og sefur t.d. vært í lazy boy stólnum núna og er búin að gera í 1,5 tíma). Þórir er sem sagt ekkert fyrir að vera á flakkinu á kvöldin, þá vill hann bara sofa í sínu rúmi. Laufey var sko allt öðruvísi að þessu leitinu, hún elskaði flakk og fjölbreytni. Vildi endalaust hitta nýtt fólk og fara á nýja staði, strax á þessum aldri. Þurfti enga reglu, hafði þetta bara eins og okkur hentaði á hverjum tíma.
Hér kemur smá videó sem ég fann sem Kidda tók 24. febrúar en það lýsir karakternum hans Þóris Sólbjarts sérstaklega vel. Hann er nefnilega alltaf svo glaður gæi; 