Archive for the ‘Heilsan’ Category
Jæja, nú er allt að gerast
Við Kidda erum á leiðinni upp á fæðingardeild, erum komnar upp á Akranes og eru bara 5-6 mínútur á milli hríða.
Frekari fréttir á morgun.
Knús
Ína
Fréttaskot
Kidda fór í mæðraskoðun í dag og kom í ljós í mónitornum að hún var með ansi reglulega samdrætti. Ljósan mælti því með að hún kæmi aftur seinnipartinn sem hún gerði. Þá voru samdrættirnir ekki eins reglulegir en einhverjir þó. Helga, ljósmóðirin sem ætlar að aðstoða tengdó við að taka á móti Poja skoðaði Kiddu hátt og lágt og sagði hún að líkaminn væri farinn að undirbúa sig undir að koma Poja til mömmínu. Það lítur sem sagt allt út fyrir að það fari að styttast í fæðinguna og ólíklegt að Kidda muni ganga framyfir. Stefnum því að því að fæða Poja innan viku.
Þar til næst…
Ína
Allt gott að frétta af Poja
Jæja, þarna hljóp fæðingarlæknirinn aldeilis á sig því í flæðissónarnum kom í ljós að Poji er alveg í meðaltali stór og legvatnið er líka alveg í meðallagi. Það er því engin ástæða til að hafa neinar áhyggjur. Kidda fer reyndar í mæðraskoðun á morgun og þá verður formlega ákveðið hvað gert skuli en allar líkur á að beðið verði eftir að Poji ákveður sjálfur að koma í heiminn.
Takk fyrir hlýjar kveðjur.
Ína









