Archive for the ‘Myndir’ Category

Nokkrar myndir frá því í febrúar

              

Smá sýnishorn af gæjanum okkar:

Töffari Hoppidíhopp Massaður Alltaf glaður 

Fleiri myndir og videó

Heil og sæl, vinir og vandamenn, nær og fjær!

Það er allmikill þrýstingur á okkur að standa okkur betur í að setja inn myndir og fréttir og því er komið að næstu atrennu.  Ég var að setja inn 109 ljósmyndir frá því í febrúar (já ykkur var nær að biðja svona mikið um fleiri myndir) og ég get lofað að þær verða engu færri settar inn frá mars mánuði.  Sjá: http://www.flickr.com/photos/rokkfamily

Það er samt alveg magnað að fara í gegnum þessar myndir og sjá hvað Þórir hefur stækkað á þessum eina mánuði.  Hann er bara orðinn algjör gaur, farinn að borða graut tvisvar á dag og langa til að borða fullorðins mat. Maður sér það á því hvernig hann starir á matinn þegar við erum að borða.  Hann virðist ætla að verða matargat eins og mömmurnar.  Já og svo er hann loksins farinn að taka pela þegar mamma hans er ekki heima með mjólkurbarinn. Trixið var að nota snuddu sem er með aukagati þar sem loft streymir inn jafnóðum. Hann var ekki alveg að fíla að þurfa að sleppa snuðinu til að hleypa lofti inn í pelann…..

Annars er hann farinn að gera sig líklegan til að fara að velta sér, er farinn að fara alveg á hliðina en svo bakkar hann alltaf aftur til baka af sinni einskæru varkárni.  Hann er ekki enn kominn með tennur en slefar þvílíkt og er búinn að gera í 3 mánuði og svo er hann gjarnan með 3 til 8 putta uppí sér í einu.  Þórir er alltaf glaður, nema helst í kringum kvöldmatinn því þá vill hann bara fara að sofa.  Hann sofnar eins og klukka um hálf níu á hverju kvöldi og sefur í einum dúr fram undir morgun, þá fær hann smá sopa og lúrir á milli þangað til hann vaknar einhverntíman á milli 7 og 9. Sem sagt algjört fyrirmyndarbarn.  Mér skilst að hann sé alveg eins og Kidda var, nema hún sofnaði enn fyrr á kvöldin eða í kringum 7 (hún er enn massa kvöldsvæf og sefur t.d. vært í lazy boy stólnum núna og er búin að gera í 1,5 tíma).  Þórir er sem sagt ekkert fyrir að vera á flakkinu á kvöldin, þá vill hann bara sofa í sínu rúmi.  Laufey var sko allt öðruvísi að þessu leitinu, hún elskaði flakk og fjölbreytni. Vildi endalaust hitta nýtt fólk og fara á nýja staði, strax á þessum aldri.  Þurfti enga reglu, hafði þetta bara eins og okkur hentaði á hverjum tíma. 

Hér kemur smá videó sem ég fann sem Kidda tók 24. febrúar en það lýsir karakternum hans Þóris Sólbjarts sérstaklega vel.  Hann er nefnilega alltaf svo glaður gæi; YouTube Preview Image

Þórir Sólbjartur í hláturskasti

Jæja, ekki er bloggáhuginn að drepa mann þessa dagana en hins vegar hættir maður aldrei að vera nörd…. áhuginn á blogginu kviknaði snarlega fyrr í kvöld þegar eiginkonan lýsti því fyrir mér hversu sárt Jóga mágkona saknaði Þóris  og að hana langaði svo ógurlega að sjá af honum mynd eða myndband.  Við hjónurnar settumst því við tölvuna og fundum út hvernig við gætum útbúið myndband, hvernig hægt væri að setja það inn á Youtube og svo var síðasta skrefið að finna forrit sem gæti tengt bloggið okkar við youtube og viti menn þetta hófst allt að lokum.  Frumraunin er hér fyrir neðan, myndband af Þóri Sólbjarti frá því fyrr í dag þar sem hann er í miklu hláturskasti. Held að hláturskastið hafi að hlutatil verið svefngalsi því hann var orðinn svo þreyttur en skemmtilegur var hann kúturinn.  Nú getið þið átt von á reglulegum fréttum af rokkfjölskyldunni úr því að við erum orðnar svona tæknivæddar. 

YouTube Preview Image

Stefnum á að setja ljósmyndir frá febrúar og mars inn á morgun en hér er að finna myndir frá því í janúar ef þið hafið ekki þegar séð þær: http://flickr.com/photos/rokkfamily/tags/jan%C3%BAar/

Friður sé með ykkur öllum – Ína

You are currently browsing the archives for the Myndir category.

  • Undirsíður

  • Gamalt

  • Flokkar