Archive for the ‘Myndir’ Category

Loksins komin í langþráð foreldraorlof

Jólabörnin blíð 4

 Í dag er fyrsti dagurinn minn í lengsta parti foreldraorlofsins, gaman, gaman. Skólinn er byrjaður á fullu og verður hann tekinn af mikilli alvöru á þessari önn, 4 fög eða 100% nám.  Mér gekk æðislega vel í fögunum tveimur sem ég tók fyrir jól og það er gaman að finna að maður er enn með fullt af sellum í lagi :-) .  Ég er líka búin að kynnast fullt af skemmilegu og kláru fólki í skólanum og er búin að finna góðan hóp til að vinna hópaverkefni með. 

Þórir Sólbjartur, sonur sæll, dafnar ekkert smá vel og höldum við að hann sé orðinn um 7 kíló eða ca. tvisvar sinnum fæðingarþyngdin hans.  Annars förum við með hann í ungbarnaeftirlit, þriggja mánaða skoðun, á föstudaginn og þá kemur þetta formlega í ljós.  Annars er hann löngu farinn að skoða á sér hendurnar og tók upp á því fyrir tveimur vikum að troða þeim uppí sig, það er ein hans uppáhaldsiðja þessa dagana. Svo byrjaði hann að slá í dótið sitt fyrir nokkrum dögum og það skríkir alveg í honum þegar hann finnur að hann hafi þau áhrif að dótið dinglar. Drengurinn slefar líka þessi ósköp og byrjaði líka á því fyrir um mánuði síðan. Er ég hrædd um að hann verði fljótur að taka tennur en við skulum vona ekki því það gæti haft áhrif á bróstagjöfina skilst mér. 

Laufey er líka voða dugleg og tekur miklum framförum á hverjum degi og er orðin 22 kíló, djók…..  Laufey er bara dugleg, falleg og góð eins og hún er vön að vera. Reyndar er hún búin að vera frekar óheppin að undanförnu, það hefur í tvígang verið stolið frá henni í baðhúsinu, í annað skiptið var iPodinum stolið og í hitt skiptið var töskunni með öllum græjum stolið. Síðan datt GSM síminn hennar í sundur.  Þannig að ef einhvern vantar bláfátækan ungling í vinnu þá veit ég um einn. 

Kidda er líka sæt og góð eins og vanalega.  Hún er einmitt 22 kíló, síðast þegar hún tékkaði (innslag frá henni sjálfri) og sjúklega brún.  Annars ver hún dögunum í ummönnun drengs og stúlku og unir hag sínum vel.  Held samt að vinnukonan í henni þurfi brátt að fá útrás…. 

Annars langar mig að þakka komment og kveðjur sem hafa komið, það er ótrúlega gaman þegar fólk kvittar í komment. 

Þar til næst

Ína fína

Ps. Hér eru fleiri nýjar myndir http://www.flickr.com/photos/rokkfamily/

Sætilíus rokk

Nýkominn úr baði III Gaman að skoða dótið sem mömmur keyptu 

Með Kristjáni stóra frænda  Nafnar að leika saman

Má ég kynna til leiks: Þóri Sólbjart Ínuson

Kæru dyggu lesendur og aðrir sem vafra inn á vefinn af tilviljun!

Í gær héldum við loksins skírnarveislu fyrir draumaprinsinn okkar og fékk hann nafnið Þórir Sólbjartur og er hann Ínuson. Þórir er í höfuðið á pabba Kiddu og Sólbjartur er tengdamömmu til heiðurs en hún heitir Sólveig.  Erum við alsælar með veisluna sem haldin var í sal í “ellimanna” blokk úti á Granda. Mætingin var vonum framar þrátt fyrir að vera viku fyrir jól og veðrið var ekki til að hrópa húrra fyrir.  Við höfðum óskað eftir því við fólk að það gæfi aur í bauk til styrkar mæðrastyrksnefndar en langflestir óhlýðnuðust og gáfu honum glæsilegar gjafir.  Langar okkur til að þakka kærlega fyrir drenginn :-) . Við vorum því miður ekki duglegar að taka myndir því það var svo gaman að spjalla við alla gestina en Helga ljósan okkar og tengdó tóku slatta af myndum sem ég ætla að fá afrit af næst þegar við komum upp á Skaga. Þið þurfið því að bíðá eftir myndum úr veislunni.  Reyndar eru nokkrar myndir frá skírnarathöfninni sem var viku fyrr vegna þess að presturinn okkar, og sá eini sem kom til greina að skírði drenginn, var í fríi í gær.

Ég (Ína) kláraði prófin fyrir nokkrum dögum og gekk bara vonum framar. Ég veit að fjölskyldan mín er fegin að hafa endurheimt mig frá skólabókunum í bili.  Skólinn byrjar svo aftur í byrjun janúar og verð ég í fullu námi á næstu önn og í fæðingarorlofi frá vinnunni.  Næstu dagar fara í að skipuleggja jólin en við eigum eftir að gera ALLT ! !  Svo taka við endalaus jólaboð hjá ættingjum.  Ég elska jólaboð :-)

Jólakveðjur

Ína, Kidda, Laufey og Þórir Sólbjartur

Nokkrar myndir frá undanförnum vikum og svo eru enn fleiri á myndasíðunni okkar:  http://flickr.com/photos/rokkfamily

Sjáið mig, ég er farinn að brosa og hjala

Brosmildur 2 Ã?g er skoooo farinn að brosa Brosmildur

Er ég ekki fínn í jólafötunum mínum 

�g að máta jólafötin (og ældi á þau)

Nýkominn úr baði 

Nýkominn úr baði með mömmínu 

Með stóru systur

Sæt systkyn 5 

Vika 3 liðin og vika 4 hálfnuð

Tíminn flýgur áfram í sápukúlunni á Rauðalæknum.  Okkur Kiddu finnst við lifa í hálfgerðri sápukúlu þar sem lífið er afar einfalt, snýst aðallega um að dást að draumaprinsinum okkar.  Mér tókst loksins að mana Kiddu til að blogga en viti menn, mér tókst að eyða skrifunum hennar út, biðst afsökunar á því. Ef eittvað er að marka söguna þá verður einhver bið á því að blogg-andinn komi yfir stóra rokk.

En aftur að litla rokki.  Hann dafnar alveg svakalega vel og í síðustu viktun (sem var fyrir viku) þá hafði hann þyngst um 300 grömm á einni viku og var orðinn 4 kíló.  Honum leið orðið voðalega vel og það var komin ágætis regla á nætursvefninn þegar hann tók uppá því í gær að kvefast, einungis 3ja vikna gamall.  Í nótt var lítið sofið en okkur finnst eins og honum líði betur í dag en í gær.

Á sunnudaginn fórum við í fyrsta sinn í bíltúr með prinsinn og var ferðinni heitið suður með sjó eða í barnaafmæli í Sandgerði.  Hún Emma Sigríður, dóttir Einars bróður varð nefnilega 4 ára í gær.  Til hamingju með afmæli Emma :-) . Það var voða gaman að fara með Poja út úr húsi og motna sig aðeins af honum.  Hann er náttúrulega langsætastur og svo er hann extra gáfaður eins og reyndar bæði börnin okkar. 

Annað sem hefur borið til tíðinda í vikunni er að Jóhanna, systir Kiddu, kom loksins frá Svíþjóð til að faðma litla frænda sinn að sér.  Ég hef ákveðnar áhyggjur af því að hún fari ekki heim til sín aftur því hún er orðin ástfangin á Íslandi (af Poja).  Jóga verður á landinu út vikuna og er voðalega gott að hafa hana til að leika við Kiddu, því það er svo mikið að gera hjá mér í skólanum.  Fer í skólann fimmtudag, föstudag og laugardag og svo í próf á miðvikudaginn.  Daginn þar á eftir byrjar alvara lífsins aftur hjá mér því þá mæti ég aftur í vinnuna. Vonandi rata ég ennþá…

Já gleymi því skemmtilegasta sem hefur gerst síðan síðast. Við í Rokkfjölskyldunni erum að fara að byggja. Við vorum svo heppin (er að æfa mig í að segja ekki allt í kvennkyni) að við vorum dregin út í lóðalotteríi Reykjavíkurborgar, fengum s.s. einbýlishúsalóð við Reynisvatnsás í Úlfarsárdal (rétt hjá vinnunni minni).  Þetta er hálfgerð sveit í borg og voða spennó.  Kidda veit hvað bíður hennar þegar Poji verður kominn til dagmúttu….

Þar til næst

Ína (fyrir hönd rokkfjölskyldunnar)

Börnin okkar

Er ég ekki eins og fyrirsæta

  Ã?g er svo sætur 5 

Jóga var búin að bíða svoo lengi eftir að sjá mig og loksins vaknaði ég 

Ã? leið í fyrsta bíltúrinn 

Er ég ekki orðinn mannalegur

Miklu fleiri nýjar myndir hér: http://www.flickr.com/photos/rokkfamily.

You are currently browsing the archives for the Myndir category.

  • Undirsíður

  • Gamalt

  • Flokkar