Archive for the ‘Óflokkað’ Category
Fyrsta hjól Þóris
Ég fór og keypti þetta fína þríhjól fyrir Þóri minn, svona ekta smábarnahjól. Þórir var alsæll með hjólið sitt og skemmti sér í smá stund við að láta mömmur og stóru systur ýta sér áfram. Síðan prufuðum við að skrúfa hliðið af (sem átti að passa að hann dytti ekki til hliðanna) og þá fyrst fékk hjólið almennilegt skemmtanagildi fyrir Þóri. Hann tók skrúfuna og festinguna og lék sér við að pota skrúfunni í skrúfganginn og þykjast vera að festa festinguna á hinn endann í endalaust langan tíma. Ég er náttúrulega eins og allir aðrir foreldar því mér finnst hann svo ótrúlega verklaginn og það kæmi mér ekki á óvart ef hann legði fyrir sig iðn eða jafnvel verkfræði. En koma tímar og koma ráð….
Læt fljóta með mynd af athöfninni, get því miður ekki sett myndbandið sem ég tók inn á síðuna því í miðju kafi þurfti maður að gera stykkin sín….
Kveðja – Ína
Poji er sprækur
Kidda fór í mónitor áðan og allt lítur vel út með Poja. Hann spriklar og virðist líða vel þrátt fyrir vatnsskort. Kidda fer aftur í mónitor á morgun, læt vita hvernig fer.
Áfram Ísland
Ína
“Þurrbrjósta” poji
Heil og sæl vinir og vandamenn,
Tengdamamma er ljósmóðir og hún vildi endilega að við kæmum í skoðun upp á Akranes því þar ætlum við að eiga Poja ef allt gengur upp. Það var frábært að fara í mæðraskoðun þar, margreynd ljósmóðir tók á móti okkur og svo var Kidda skoðuð af fæðingarlækni með sónartæki. Kom í ljós að Poji litli hefur nánast ekkert vatn til að synda í og er afskaplega smár. Hann er 21,5% undir meðaltali og meðaltal á Íslandi er ca. 3.600 grömm. Það þýðir að Pojinn okkar verður hugsanlega ekki nema 11-12 merkur. Vegna þessa er nánast útilokað að Kidda verði látin ganga framyfir tímann sem er 31. okt. Næstu daga þarf Kidda að mæta í tékk daglega þar sem fylgst verður með að Poji litli nærist því það er hætta á að hann hætti að nærast undir þessum kringumstæðum. Kidda er því í góðu yfirlæti hjá ma og pa á Skaganum því þar verðum við í tékki héðan í frá.
Verð dugleg að setja inn fréttir.
Kveðja
Ína










