Archive for the ‘Óflokkað’ Category
Heima er best
Jæja elsku vinir og önnur vensl,
Það besta við að fara í svona gott og langt frí er að koma heim, því heima er best. Nú er maður búin að vera heima í 3 vikur og ekki hefur mér dottið í huga að blogga fyrr en nú. Svona er maður nú bara helvíti hress.
Síðan við komum heim hef ég bara verið að reyna að njóta þess að vera í minni vinnu. Er alveg hætt að smíða í bili sökum óléttu, en er að sinna starfi mínu í Húsi atvinnulífsins ásamt því að sinna fyrirtækinu okkar. Þannig að það hefur heldur betur hægst á hjá mér. Konan mín góða er alsæl með þessa miklu viðveru mína heima. Maður er náttúrulega sjúklega myndarleg húsmóðir þegar maður tekur sig til. Gott dæmi um það er að síðasta fimtudagsmorgum vaknaði ég klukkan átta og fór að baka hjónabandssælu. Þetta fnnst mér frekar roy. En nóg um myndarskapinn.
Í gær skelltum við hjónin okkur í sögugöngu samkynhneigðar sem Felix Bergsson og Baldur, maðurinn hans, stóðu fyrir. Þetta er liður í gay pride hátíðinni sem var sett í gær hér í borg. Þarna röktu þeir sögu samkynhneigðra í Reykjavík allt aftur til ársins 1882. Mjög athyglisverð ganga og gaman að sjá hvað þeir voru búnir að leggja mikla vinnu í þetta. Svo ætluðum við að skella okkur í smá partý eftir gönguna en sökum leti þá var stefnan tekin heim. Það er líka mjög mikið framundan hjá okkur. Í kvöld verður formleg opnunarhátið gay pride í Loftkastlanum og svo er stóri dagurinn á morgun.
Partýið byrjar snemma hjá okkur á morgun. Ásta litla frænka heldur upp á afmælið sitt kl 11 þannig að það er fyrsta stopp. Maður getur ekki stoppað lengi þar því næsta partý byrjar kl 1130. Þá býður tískulöggan sjálf, Svavar Örn og maðurinn hans hann Danni sæti, til veislu og ef ég þekku þá rétt þá verður sú veisla ekki af verri endanum. Gleðigangan byrjar svo kl 1400.
Um kvöldið ætlum við svo út að borða með Söru og Bylgju, á Silfur, og að sjálfsögðu verður stefnan svo tekin á NASA og djammað fram eftir nóttu. Þannig að það má svo sannalega segja að þetta verði sannkölluð station helgi hjá okkur.
Fyrir mig er gay pride dagurinn ótrúlega merkilegur dagur. Það er svo fallegt að finna þennan samhug, hlýju og stuðning sem Íslendinga sýna okkur samkynheigðum í verki, með því að mæta niður í bæ og taka þátt í hátíðarhöldunum. Ég er alltaf hálf meir þennan dag og uppfull af þakklæti. Ég hugsa að ég þurfi að taka með mér vasaklút á morgun. Undir venjulegum kringumstæðum þá á ég erfitt með að halda tárunum inni, en núna þegar ég er ólétt, ég segi nú bara eins og hún amma Munda, JÉSÚS MINN GUÐSONUR GÓÐUR.
Ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili. Best að fara að þrýfa. Við erum svona að vinna í því að koma myndunum inn frá Spáni, þannig að það verður vonandi bráðum.
Virðing Kidda
Loksins komnar myndir úr fermingunni
Loksins eru komnar myndir á netið úr fermingaveislu Laufeyjar Ebbu. Smellið bara á slóðina hér fyrir neðan og þið getið skoðað myndirnar.
http://www.flickr.com/photos/rokkfamily/sets/72157601106743407/detail/
Fljótlega verða síðan settar inn myndir úr ævintýraferðinni okkar.
Kær kveðja
Ína
Á leiðinni heim
Nú sitjum við í heldri kvenna stofunni á Alicante flugvelli og látum fara vel um okkur og látum okkur dreyma um að vera komnar alla leið heim til okkar. Flugið er eftir hálftíma og það eru því bara 5-6 tímar þar til maður mun anda að sér al-íslensku lofti. Mann er bara farið að hlakka til þess
.
Bið að heilsa í bili
Ína fína