Archive for the ‘Óflokkað’ Category
San Sebastian
Jæja þá erum við mættar í paradís. Nánar tiltekið San Sebastian á norður spáni. Þetta er eins og ævintýri líkast. Ströndin er í hálfmána meðfram bænum og það er fullkomið að vera í sjónum hérna. Hann er heitur og hreinn. Alls ekki skítugur. Við komum hingað í gærkvöldi og tékkuðum okkur inn á þetta ljómandi fína hostel. Svo tókum við púlsinn á næturlífinu. Það var ótúlega mikið stuð í bænum, en það sem mér þótti nú samt skemmtilegast voru tapashlaðborðin á hverjum einasta bar allt sjúklega gott.. Þetta er kannski frekar hættulegt fyrir óletta konuna sem hefur óeðlilega mikinn áhuga á mat þessa dagana. Við erum sem sagt mjög vel haldnar hér í San Sebastian á allan hátt.. Við erum svo búnar að vera á ströndinni í allan dag, og erum orðnar hel-tanaðar. Það er stutt í leðurveskisáferðina hjá okkur, en það er takmark okkar. Þá kannski sérstaklega þeirra yngstu í hópnum. Nefni engin nöfn.Nú erum við búnar að vera í þessu stórkostlega fríi okkar í 3 vikur, og þá eru 2 eftir.. Þetta er búið að líða rosalega hratt og við erum búnar að skemmta okkur svo vel. Það er frábært að fara í svona langt frí með fjölskyldunni sinni og ég hvet alla þá sem hafa tækifæri til þess, að gera þetta. Maður á það til að gleyma sér í vinnu og streitu og finnast maður ekki geta farið í burtu svona lengi. En þetta er málið og lífið.. Það sem er samt rúsinan í pylsuendanum er náttúrulega að koma heim til sín að lokum, því heima er best..Heimspekihornið verður ekki lengra að þessu sinni. Allt sem fer upp kemur niður og af litlum neista verður oft mikið bál (skilst mér), þess vegna kveð ég að sinni úr paradís. Endilega veriði dugleg að kommenta því þá verður okkur svo hlýtt í hjartanu.Þangað til næst virðing og vinsemd Kiddarokk
Madríd kvödd með trega :-(
Í gær kvöddum við Madríd með trega eftir 6 daga æðislega dvöl. Nú er Madríd opinberlega orðin uppáhalds stórborgin mín (Ína). Við vorum svo heppnar að íbúðin sem við höfðum leigt var staðsett akkúrat í miðri borg í miðju landi eða þar sem þeir kalla núllpúnkt Spánar á Puerta del Sol. Í nágrenni við okkur var svakalega fjölbreytt og skemmtilegt mannlíf og það var sama í hvaða átt við gengum út á morgnana við upplifðum ávallt eitthvað svakalega spennandi og skemmtilegt. Auðvita fylgdi borginni svolítið af betlurum eins og alls staðar annars staðar í heiminum en ekki margir þó. Við erum að giska á að lögreglan haldi ógæfufólkinu í skefjum því þú labbar ekki heila götu án þess að mæta löggu í Madríd.
Áður en við fórum í þessa ferð keyptum við 900 blaðsíðna langa bók um Spán og í henni er að finna fróðleik um allt á milli himins og jarðar. Gistingu, mat, hvert maður á að fara, hvað maður á að gera, internetkaffi hvar er hægt að þvo þvottinn sinn og margt margt fleira. Þessi bók kom að frábærum notum í Madríd þar sem það er einhverskonar veitingastaður, kaffihús eða bar í öðru hvoru húsi. Kiddu og Laufeyju fannst stundum nóg um hvað nefið á mér var áfast við bókina en ég held þær kunni nú samt að meta hvað bókin skilaði. T.d. var á horninu þar sem við bjuggum alveg meiriháttar æðislegt sætabrauðsbakarí þar sem maður gat valið sér sætabrauð sem var stillt upp á diskum og svo stóð maður og drakk kaffi og borðaði geðveikt sætabrauð við hálfgert barborð (myndir seinna). Mæli 100% með heimsókn í þetta æðislega og ódýra bakarí (La Mallorquina).
Fyrsta heila daginn okkar í Madríd fórum við á Europride sem er Evrópu Gay pride-ið, sem er haldið í einni borg í Evrópu á hverju ári. Við höfum ekki staðfestar fréttir af því hvað það voru margir en við höfum heyrt töluna 2 milljónir gesta. Gangan byrjaði klukkan 18 sem er nú óvenjulega seint en á Spáni byrjar ekkert fyrr en um 5-6 leitið, það er þeirra tempó. Það er nú líka skynsamlegt að vera ekki með 2 milljónir manns í einni þvögu í hátt í 40 stiga hita. Við entumst ekki nema í 2 klukkustundir og þá virtist gangan rétt að vera að byrja. A.m.k. áttu flestir bílarnir eftir að koma. Eftir að við “gáfumst upp” á göngunni fórum við út að borða í Chueca sem er gay hverfi Madrídar og það var alveg meiriháttar töff og alveg ótrúlega risastórt. Þar var partý úti á götum, alls staðar. Það var bara búið að stilla upp barborðum fyrir utan alla staðina, þar sem voru seldir drykkir og var þetta eitt stórt partý. Einhverntíman hefði þetta partý glatt rokkaramömmuna en í þetta skiptið létum við okkur nægja að labba einn hring um hverfið og upplifa menninguna eða ómenninguna, eftir því hvernig á þetta er litið…
Daginn þar á eftir (sunnudag) fórum við í skoðunarferð um Madríd á svona tveggja hæða rútum og sáum stóran hluta borgarinnar. Það er alveg magnað hvað það er mikið um fallegar byggingar hérna, hallir, kirkjur, skúlptúra, gosbrunna, torg, hlið (sigurboga) og margt fleira. Það virðist mikið vera lagt í alls kyns skraut og styttur til að punta upp á hús, torg og götur. Og talandi um torg, þá finnst mér alveg magnað hvað öll þessi litlu torg úti um allt gera mikið fyrir mannlífið, það iðar allt af lífi á hverju einasta torgi. Og allst staðar finnst manni maður öruggur. Aldrei upplifðum við okkur óöruggar í þessari stóru borg eins og maður hefur oft upplifað í öðrum stórborgum sem maður hefur heimsótt.
Á mánudaguinn var langþráður verslunardagur hjá Lovely eins og hún var kölluð af starfsmönnum skólans sem við vorum í. Við eyddum megninu af deginum í búðum og þar af lang mestum tíma í æðislegri og risastórri H&M búð. Allar fengum við eitthvað þar við hæfi. Ég verð bara að mæla með Madríd sem frábærri verslunarborg. Hér er skoo hægt að gera góð kaup af öllu sem manni dettur í hug. Við höfum s.s. ekkert verslað mikið en þurftum þó að fara og kaupa aukaferðatösku áður en við yfirgáfum borgina….
Þriðjudeginum vörðum við svo í Retiro garðinum sem er alveg hreint risa stór garður í miðri borginni sem konungur Spánar, sem ég man ekki hvað heitir lét gera fyrir heldri borgara Spánar fyrir 2-300 árum. Garðinum hefur verið líkt við Central Park í New York en í Retiro sérðu ekki einn einasta ”vandræðagemsa” (heimilislausa, dópista osfrv.) og gæti skýringin verið sú að um garðinn keyra óteljandi löggur alveg stöðugt. Við vorum farnar að halda að það væri hætta á hryðjuverkaárás (pínu dramó) en fengum þá skýringu að þetta væri vegna þess að það væri mikið um sölu eiturlyfja í garðinum. Við enduðum ferðina í garðinn á að leigja okkur árabát á risa tjörn sem er í miðjum garðinum.
Miðvikudeginum var síðan varði í vatnaveröld fyrir utan Madríd að ósk einkadótturinnar. Verður undirrituð að upplýsa að hún skemmti sér mun betur en hún hefði trúað… þetta var alveg frábær dagur. Það var líka gaman að sjá Spænkst úthverfi, þetta var meira eins og úthverfi í Bandaríkjunum, risa stór einbýlishús og allt svo hreint og ríkmannlegt. Bíltúrinn gekk alveg vonum framan enda við búnar að ná að staðsetja okkur í Madríd og búnar að læra vel á “GRÆJUNA GÓÐU”. Um kvöldið kvöddum við Madríd með því að borða á rosalega fínum Mexíkóskum veitingastað. Maturinn var góður og spennandi en líka að sama skapi svaka dýr, miðað við Spán a.m.k. Eftir matinn fórum við þreyttar en alsælar “heima” að pakka. Daginn eftir var haldið til San Sebastían eða Donostia.
Ástarkveðja til ykkar allra
Ína
Ps. hvet ykkur til að setja inn komment, það er svo gaman fyrir okkur að heyra í ástvinum.
PPS. Myndir verða sennilega ekki settar inn fyrr en við komum heim, því það er svo flókið að hlaða þeim inn á mislélegum þráðlausum tengingum.
Madrid
Váaaaaahhhtsjj maður,
Ég er ekkert smá heilluð að Madridarborg. Við komum hingað á föstudagskvöld. Ferðin gekk vel frá Granada. Reyndar þegar við komum inn í borgina flæktist málið aðeins.. Það er óhætt að segja að maður þurfi að hafa sambland af frekar miklum töffaraskap og svona slatta af æðruleysi til þess að koma heill út úr akstri í Madridarborg. Ég var ekkert smá stollt af konunni minni þar sem hún keyrði um eins og herforingi, frekar einbeitt og íbygginn á svip. Við sem sagt komum inn í borgina ca 21:00. Þegar kom svo að því að finna hótelið kom í ljós að við erum staðsettar á besta stað í bænum og þ.a.l.er ómögulegt að komast þangað akandi. Sérstaklega í ljósi þess að það var Europride (evrópu gay pride) í Madrid og sennilega svona 2 milljónir auka gesta í borginni. Við komumst nú samt á leiðarenda að lokum þegar við vorum búnar að prófa að aka upp göngugötu og ég, Kidda rokk, var búin að taka að mér að stýra bílumferð á göngugötunni. Þegar við tókum þetta frumkvæði eins og sönnum forystusauðum sæmir, þá fylgdu náttúrulega fleiri ringlaðir túristar í fótspor okkar.
Í gær áttum við svo stórkostlegan dag í stórkostlegri borg. Við byrjuðum á því að tékka aðeins á nánasta umhverfi og svo var náttúrulega hápunktur dagsins europride gangan sem varði í þokkalega 3 tíma. Við reyndar tórðum ekki nema í 2 tíma og röltum þá inn í Chueca hverfið, sem er gay hverfi Madridar og fengum okkur æðislega góðan mat og svo var partý fram eftir kvöldi á öllum götum hverfisins. Þetta var frábært.
Það er allveg fullt af frábærum hlutum að skoða hér í Madrid og maður á pottþétt eftir að koma aftur. Í dag erum við svo búnar að vera ekta túristar og taka rútutúristarúnntinn og fara á markað. Í kvöld ætlum við svo að borða á Plaza Ana, fá okkur tapas og upplifa stemminguna.
Okkur langar að óska Otisi Þorvaldi innilega til hamingju með afmælið, en hann er 1 árs í dag, og erum við að hugsa til hans. Annars ætla ég að kveðja að sinni. Maður þarf að sjæna sig fyrir kvöldið. Það er allt gott að frétta af lillanum okkar. Hann er farinn að sparka duglega í mömmu sína og er að öllum líkindum haldinn nettri fótaóeirð eins og mamma sín.
Virðing Kidda