Archive for the ‘óléttan’ Category
Nýr prins af Rauðalæk
Það hefur ekki mikið verið skrifað á heimasíðu Rokkfjölskyldunnar undanfarið ár eða svo. En nú er sko tilefni til að taka upp lyklaborðið og segja fréttir. Við Kidda verðum brátt þriggja barna mæður. Réttara sagt munum við bráðum eiga tvö börn og einn ungling
. Kidda gengur sem sagt með dreng sem áætlar að koma í heiminn þann 18. janúar 2009. Spennan á heimilinu er í hámarki og er alveg ótrúlegt hvað hvert hvert barn er mikil gleðigjöf. Þetta er eitt af því sem er alltaf jafn ánægjulegt. Hér koma nokkrar myndir af prinsinum:
15/6/2009:

Hér er lillinn ekki nema rétt rúmlega rækja
9/7/2009:
Hérna er ég 12 vikna að vinka mömmum mínum.
1/9/2009:
Lillinn var í þvílíku stuði og vinkaði okkur heilmikið.
Hér virðist hann vera að blása tyggjókúlu en þetta er víst bara naflastrengurinn.
Hér veifar hann okkur með tásunum sínum.
Við erum búnar að fara í öll tékk og allt lítur vel. Fyrstu 10 vikurnar var hún hálfgert hliðarsjálf sökum ógleði og slappleika en hristi það snarlega af sér eftir rúmar 10 vikur. Kidda er núna svaka hraust og kát og ætlar að byrja í meðgöngujóga fljótlega.
Við munum reyna að setja inn fréttir af meðgöngunni og kannski af hinum fjölskyldumeðlimunum líka á næstunni.
Kærleikskveðja úr Rauðalæknum
Ína, Kidda og börnin
Draumaprinsinn mættur á svæðið
Stuttar fréttir af Rokkfjölskyldunni. Yfir Rokk sannaði í dag hvað það er að vera sannur rokkari, það er nefnilega að vera sönn hetja. Hún Kidda mín var mesta hetja sem ég hef nokkru sinni hitt í þessari fæðingu. Hún notaðist eingöngu við jógatækni til að koma sér í gegnum fæðinguna og fékk því engin meðöl. Hún hafði engan áhuga á þeim, heldur andaði bara inn um nefið og út um munninn með svokallaðri haföndun. Ég hef bara aldrei elskað hana eins heitt eins og í dag. Allt gekk þetta eins og í lygasögu og Poji kom í heiminn klukkan 14:47. Draumaprinsinn var síðan ekkert lítill eins og gárungarnir voru búnir að spá heldur rétt rúmar 15 merkur eða 3.765 grömm og 53 cm. Pilturinn grét þegar hann fæddist eins og til er ætlast en bara rétt nóg til að hreinsa sig, síðan þá hefur hann ekki grátið. Hann saug strax bæði brjóstin og fór svo að sofa. Þegar þetta er ritað er hann búinn að sofa í 5-6 tíma samfellt, þrátt fyrir að sumir séu búnir að reyna mikið að vekja hann (m.ö.o. amma Sóla). Þetta lofar því mjög góðu. Pilturinn var ansi blár þegar hann fæddist en það eltist af honum á 2 tímum. Nú er hann svakalega súkkulaði sætur eins og neðangreindar myndir gefa til kynna. Mig langar að skrifa miklu meira um þessa upplifun en þar sem Kidda og ónefndur (nú verður maður að hætta að kalla hann Poja svo það festist ekki við hann) bíða eftir mér uppá spítala en ég skrapp heim til tengdó til að skrifa nokkrar línur og sýna ykkur myndir.
Að lokum langar mig að þakka ljósmóðurinni okkar henni Helgu vinkonu tengdamóður fyrir að taka á móti Poja fyrir okkur. Helga er búin að vera á bakvakt fyrir okkur í nokkrar vikur núna. Tengdamamma sem líka er ljósmóðir var líka viðstödd og voru þær saman í að taka á móti. Kærar þakkir til ykkar fyrir að gera þetta að svona rómantískri og fallegri stund. Ég er ekki enn farin að trúa hvað þetta var falleg og átakalítil og róleg stund (með jógátónlist og jógailm).
Ég skora síðan á Kiddu að skrifa ýtarlega fæðingasögu þegar hún verður búin að jafna sig. Þ.e.a.s. ef hún man eitthvað eftir þessu, hún var nefnilega í svo massa mikilli og djúpri íhugun allan tímann.
Ást til ykkar allra.
Ína
Ps. Laufey stóra systir stóð sig líka eins og besta stóra systir og fékk að vera með í stórum hluta ferilsins. Hún verður besta stórasystir í heimi








Jæja, nú er allt að gerast
Við Kidda erum á leiðinni upp á fæðingardeild, erum komnar upp á Akranes og eru bara 5-6 mínútur á milli hríða.
Frekari fréttir á morgun.
Knús
Ína









