Archive for the ‘óléttan’ Category
Fréttaskot
Kidda fór í mæðraskoðun í dag og kom í ljós í mónitornum að hún var með ansi reglulega samdrætti. Ljósan mælti því með að hún kæmi aftur seinnipartinn sem hún gerði. Þá voru samdrættirnir ekki eins reglulegir en einhverjir þó. Helga, ljósmóðirin sem ætlar að aðstoða tengdó við að taka á móti Poja skoðaði Kiddu hátt og lágt og sagði hún að líkaminn væri farinn að undirbúa sig undir að koma Poja til mömmínu. Það lítur sem sagt allt út fyrir að það fari að styttast í fæðinguna og ólíklegt að Kidda muni ganga framyfir. Stefnum því að því að fæða Poja innan viku.
Þar til næst…
Ína
Allt gott að frétta af Poja
Jæja, þarna hljóp fæðingarlæknirinn aldeilis á sig því í flæðissónarnum kom í ljós að Poji er alveg í meðaltali stór og legvatnið er líka alveg í meðallagi. Það er því engin ástæða til að hafa neinar áhyggjur. Kidda fer reyndar í mæðraskoðun á morgun og þá verður formlega ákveðið hvað gert skuli en allar líkur á að beðið verði eftir að Poji ákveður sjálfur að koma í heiminn.
Takk fyrir hlýjar kveðjur.
Ína
30 dagar í Poja litla (eða hér um bil)
Kæru vinir og vandamenn til bæjar og sveita.
Nú eru bara 30 dagar í áætlaðan fæðingardag og er Poji litli farinn að troða sér ofan í grind móður sinnar númer eitt, með tilheyrandi sársauka í lífbeini og grind. Mér finnst hún konan mín alveg langsætasta ólétta konan í heiminum og er með stór plön um að halda henni óléttri næstu árin…..
Hér koma svakalega sætar myndir af henni Kiddu minni sem ég tók áðan:
Eins og þið sjáið þá er Kidda í myndatöku uniforminu, þannig er hægt að sjá trendið betur

Orðin svolítið þreytt og situr við eldamennskuna. Ekki gefst hún upp, heldur finnur lausn á öllu, líka hvernig er hægt að elda þreyttur

Að lokum langar mig að monta mig af nýjustu frænkunni minni sem ennþá er ónefnd og er Einars bróður míns dóttir.

Bið að heilsa í bili
Ína