Archive for the ‘óléttan’ Category

Bloggstíflan brostin

Ég er löt ég viðurkenni það alveg. Í ljósi þess að ég er tæplega í hálfu starfi þessa dagana, þá ætti ég nú að geta lufsast til að blogga örlítið af og til. Góð vinkona, ein af þeim sem segir manni sannleikann um sjálfan sig, tók mig einmitt í geng fyrir letina um daginn þegar ég hitti hana. Nú er hún búin að kommenta á mig og ég verð bara að viðurkenna að óttinn greip mig. Hvað gerir maður þá, jú maður stígur bara inn í óttann. Þetta blogg er þér að þakka Allý. Nú sit ég hér óttalaus og skrifa þessa fæslu, og það er nú bara svona ljómandi mikið stuð skal ég segja ykkur.

Það skemmtilegasta sem gerðist í þessari ógurlegu bloggstíflu minni var að það fæddust þrjú yndileg börn í kringum okkur. Jódís og Guðrún eignuðust yndisfagran son 22 ágúst, hann Magnús Bjart. Næstur í heiminn var ónefndur Ásdísarson Smith. Hann fæddist 24 ágúst. Þriðja kraftaverkið leit svo dagsins ljós 4 september, en þá fæddist sjötta barn Einars (bróðir Ínu) og Rebekku. Hún var engin smá rófa 20 merkur og 55 cm. Til hamingju allir.

Það er svolítið fyndið að spá í hvað maður breytist mikið þegar maður verður óléttur. Maður fær óstjórnlegan áhuga á öllu sem viðkemur börnum, barnadóti og þá ekki síst fæðingarsögum. Maður má passa sig að fara ekki útí öfgar með þessa umræðu því eðlilega þá hafa sko alls ekki allir áhuga á að tala BARA um þetta málefni. Þegar fólk er orðið tómt í augunum og farið að tvístíga þá er mál að skipta um umræðuefni. Það er samt ekki alltaf hægt, því stundum er þráhyggjan komin á æðra stig og maður bara hreinlega ræður ekki við sig.

Móðir mín blessunin lenti í hrakningum í nótt. Hún var á leið út á flugvöll ásamt hópi kvenna, sem voru á leið í skemmtiferð til Þýskalands. Þær festust í aurskriðu í Kollafirði. Maður þakkar bara fyrir að ekki voru nein alvarleg slys á mannskapnum. Þegar þær voru búnar að vaða aur og drullu komust þær út á flugvöll og náðu fluginu, en komu víst frekar sölugar á Leifstöð. Gott að allt fór vel. Ég var nú frekar dramantísk inní mér þegar ég frétti af þessu.

Ég er annars bara að tryllast úr svakalega miklu stuði þessa dagana. Ég er alltaf að verða spenntari og spenntari með hverjum deginum sem líður. Núna er ég gengin 33 vikur þannig að það er ekkert svakalega langt eftir hjá mér. Ína mín er byrjuð í mastersnámi, konan stefnir á að verða meistari í fjármálum fyirtækja. Mér finnst þetta náttúrulega frekar grand hjá henni. Nú reynir á hæfileika mína sem góð og stuðningsrík eignkona, því þetta verður frekar stembin önn hjá henni, því hún er auðvitað líka að vinna 100%.

Ég ætla ekki að blogga meira í bili. Maður verður að passa sig að overdosa ekki þegar maður byrjar aftur eftir svona langt hlé.
Virðing Kidda

 Læt fylgja nýja mynd af bumbunni.

Kidda 33 vikur

Ný óléttumynd

Hér kemur nokkurra daga gömul mynd af henni Kiddu minni. Þið sjáið að hún er alveg svakalega pen ennþá, eins og henni einni er lagið.  Með Kiddu á myndinni er Rebekka mágkona mín sem á von á sínu sjötta kríli á morgun (mánudaginn 20/8) og er því komin alveg á steypirinn á myndinni. 

Kidda og Rebekka óléttar

Annars áttum við alveg frábæra helgi. Ég fór í partý með vinnunni á föstudaginn þar sem við kvöddum með tárum fráfarandi framkvæmdastjóra HugarAx og þar af leiðandi fráfarandi yfirmann minn. Kidda fór á tónleikana sem voru á Laugardalsvelli og var alveg í skýjunum með þá. 

Í gær fengum við svo góðan gest til okkar, hann Kristján systurson minn.  Hann er mikil dúlla og við skemmtum okkur konunglega með honum á menningarnótt. Löbbuðum um allan bæ, fórum á barnaball á Nasa, tónleikana á Miklatúni og horfðum síðan á flugeldasýninguna. Kvöldið endaði síðan á heitum kakóbolla við eldhúsborðið.

Í dag fórum við með Kristján í Kringluna þar sem hann valdi sér æðislegt Plaimó hús en hann græddi nefnilega  fullt af peningum í gær þegar við hittum frænda nokkurn niðri í bæ.  Síðan hittum við elskulega tengdaforeldra mína á Kaffi Flóru í grasagarðinum, alltaf jafn kósý þar.

Ég og Kristján í góðum gír

Í kvöld erum við bara búnar að vera að dúlla okkur við að sortera í skápunum og huga að komu “poja” litla en lillinn okkar gengur undir því nafni manna á milli. 

Þar til næst…

Ína

Kidda sæta

Hér sjáið þið mynd af Kiddunni minni sætu og góðu. Myndin er tekin í gær og þá var hún komin 19,5 vikur á leið.  Á miðvikudaginn förum við einmitt í 20 vikna sónar og er spennan á heimilinu mikil.  Væntanlega fáum við að vita kynið þá :-) .

Kidda komin 19,5 vikur á leið

Minni á að Kidda rokk verður í Kastljósi einhvern næstu daga, þá getið þið séð hana ólétta að rokka.

Kveðja

Ína

You are currently browsing the archives for the óléttan category.

  • Undirsíður

  • Gamalt

  • Flokkar