Archive for the ‘Skólinn’ Category
Spennandi tímar framundan
Mig langar að byrja á að þakka kærlega fyrir allar kveðjurnar bæði hér á síðunni og með SMS í tilefni afmælisins míns og prófloka sem vill nú svo skemmtilega til að voru sama daginn (28. apríl). Í tilefni dagsins brugðum við stelpurnar okkur af bæ og fórum á Tapas barinn. Þar rifjuðum við upp góða takta frá því í ferðalagi okkar um Spán í fyrra. Við pöntuðum okkur 12 rétti, Laufey var strax með á hreinu hvað hún vildi. Hún pantaði sér kengúru, pírí pírí kjúkling, hvítlaukssnigla og patatas bravas. Kidda var á hefðbundnari nótum, lamb í lakkríssósu, nautakjöt í teríakí sósu, humar í hvítlauk og túnfiskur. Ég fékk hins vegar 4 rétti að vali kokksins og fékk reyktan lunda í bláberjabrennivínssósu, hörpuskel í beikondöðluvafningi, lambaspjót og humar/hörpuskel í einhverri gratineringu. Þetta var allt meiriháttar gott en við vorum þó sammála um að lundinn stóð uppúr, þá hörpuskelin í beikondöluvafningi og kengúran. Namminamminamm….. vonandi verður góður tapas staður þar sem við verðum á Mallorca í sumar.
Já við rokkfjölskyldan erum sem sagt að fara að bregða fyrir okkur betri fætinum í sumar. Ferðalögin byrja reyndar strax í á morgun (4. maí) en þá fer ég til New York og þaðan til Boston á námskeið í persónulegum fjárfestingum. Kidda og Þórir munu svo koma til Boston á fimmtudaginn og þá verður tekið á því í búðunum. Þórir verður bara ólaður niður í vagninn og við örkum af stað….Laufey greyjið verður skilin eftir heima þar sem hún er hætt á brjósti en hún fær kannski sokkapar til að bæta það upp. Heimkoma 13. maí.
28. maí verður síðan haldið til Mallorca í boði ma og pa a la grande í Innri Njarðvík town. Þau eru sem sagt að verða sextug í sumar og ákváðu að bjóða “hele familien” með í utanlandsferð. Þetta verða s.s. 2 ömmur, mamma og pabbi, systkyni mín 3, einn maki og 14 börn á aldreinum 6 mánaða til 14,5 árs. Já og síðast en ekki síst Lilja móðursystir
. Við verðum á Mallorca í 3 vikur en fyrstu vikuna verðum við bara með Ella og er planið að taka ferju til Barcelona og gista þar eina nótt.
Síðar í sumar er stefnan tekin á Dranga, í Bolungavík, á ættarmót og til Gautaborgar. Og hvað þurfa konur ekki að vinna? Ég er s.s. hætt hjá HugAx og er með tvennt annað í pípunum sem ekki er hægt að segja frá strax. Sumarið verður sem sagt hlaðið orlofi. Ekkert smá gaman.
Ég veit að margir kíkja inná síðuna til að fá fréttir af Þóri litla Sólbjarti Ínusyni Rokk og loksins koma þær. Loksins er drengurinn orðinn kenndur við Ínu mömmu sína eftir smá þras við þjóðskrá. Það virðist hið flóknasta mál að fá hann kenndan við hina mömmuna, þeir krefjast skriflegrar yfirlýsingar frá læknastofunni og okkur og alls kyns rugl. Hins vegar ef kona heldur fram hjá manninum sínum þá verður sá lausaleikskrói sjálfkrafa kenndur við eiginmanninn og enginn er spurður að neinu. Sem sagt allt of flókið kerfi utan um ekki neitt.
Þórir varð 6 mánaða núna 27 apríl og er orðinn algjör gaur. Hann tók fyrstu veltuna á eigin vegum þann 11. apríl en núna veltir hann sér hring eftir hring í báðar áttir. Hann er líka farinn að sitja og svo labbar hann um allt í göngugrindinni. Svo ég tali nú ekki um hvað hann er sjúklega handóður. Ég veit ekki hvort þetta sé alveg normal fyrir ekki eldra barn, mér finndist hann allavega alveg mega vera lilli dúlli aðeins lengur
. Hann er líka farinn að borða fjölbreyttari fæðu, kartöflur og grænmeti, ávexti og grauta. Það bólar hins vegar ekkert á tönnslunum sem við vorum sannfærðar um að kæmu snemma. Hann er s.s. tannlaus greyjið…..
Þórir er þó alveg einstaklega tillitsamur. Til að mynda þá varð hann veikur í fyrsta skipti eftir hádegi daginn sem ég kláraði prófin. Við Þórir erum því búin að vera tvö innilokuð alla vikuna því Kidda var að leggja parket og fleira. Hann er nú allur að koma til núna en við þurftum að fá smá púst fyrir hann. Eyrun hafa þó sloppið hingað til 7-9-13. Það er algjör lúxus að vera með heimilislækni í fjölskyldunni sem getur tékkað á því þegar mömmurnar fá panic attac.
Ég er að vinna í því að hlaða inn myndum frá því í mars en það tekur heila eilífð. Gæti verið vegna þess að tölvan er þráðlaus, er þó ekki viss. Kíkið endilega beint á myndasíðuna okkar http://www.flickr.com/photos/rokkfamily/.
Þeir sem eru enn að lesa eru ekkert smá duglegir því þetta er orðin svakalega langur texti en svona er það þegar maður er of upptekinn til að blogga reglulega.
Kveðja frá Rokkfjölskyldunni – Ína Björk
Loksins komin í langþráð foreldraorlof

Í dag er fyrsti dagurinn minn í lengsta parti foreldraorlofsins, gaman, gaman. Skólinn er byrjaður á fullu og verður hann tekinn af mikilli alvöru á þessari önn, 4 fög eða 100% nám. Mér gekk æðislega vel í fögunum tveimur sem ég tók fyrir jól og það er gaman að finna að maður er enn með fullt af sellum í lagi
. Ég er líka búin að kynnast fullt af skemmilegu og kláru fólki í skólanum og er búin að finna góðan hóp til að vinna hópaverkefni með.
Þórir Sólbjartur, sonur sæll, dafnar ekkert smá vel og höldum við að hann sé orðinn um 7 kíló eða ca. tvisvar sinnum fæðingarþyngdin hans. Annars förum við með hann í ungbarnaeftirlit, þriggja mánaða skoðun, á föstudaginn og þá kemur þetta formlega í ljós. Annars er hann löngu farinn að skoða á sér hendurnar og tók upp á því fyrir tveimur vikum að troða þeim uppí sig, það er ein hans uppáhaldsiðja þessa dagana. Svo byrjaði hann að slá í dótið sitt fyrir nokkrum dögum og það skríkir alveg í honum þegar hann finnur að hann hafi þau áhrif að dótið dinglar. Drengurinn slefar líka þessi ósköp og byrjaði líka á því fyrir um mánuði síðan. Er ég hrædd um að hann verði fljótur að taka tennur en við skulum vona ekki því það gæti haft áhrif á bróstagjöfina skilst mér.
Laufey er líka voða dugleg og tekur miklum framförum á hverjum degi og er orðin 22 kíló, djók….. Laufey er bara dugleg, falleg og góð eins og hún er vön að vera. Reyndar er hún búin að vera frekar óheppin að undanförnu, það hefur í tvígang verið stolið frá henni í baðhúsinu, í annað skiptið var iPodinum stolið og í hitt skiptið var töskunni með öllum græjum stolið. Síðan datt GSM síminn hennar í sundur. Þannig að ef einhvern vantar bláfátækan ungling í vinnu þá veit ég um einn.
Kidda er líka sæt og góð eins og vanalega. Hún er einmitt 22 kíló, síðast þegar hún tékkaði (innslag frá henni sjálfri) og sjúklega brún. Annars ver hún dögunum í ummönnun drengs og stúlku og unir hag sínum vel. Held samt að vinnukonan í henni þurfi brátt að fá útrás….
Annars langar mig að þakka komment og kveðjur sem hafa komið, það er ótrúlega gaman þegar fólk kvittar í komment.
Þar til næst
Ína fína
Ps. Hér eru fleiri nýjar myndir http://www.flickr.com/photos/rokkfamily/




