Fyrsta hjól Þóris
Ég fór og keypti þetta fína þríhjól fyrir Þóri minn, svona ekta smábarnahjól. Þórir var alsæll með hjólið sitt og skemmti sér í smá stund við að láta mömmur og stóru systur ýta sér áfram. Síðan prufuðum við að skrúfa hliðið af (sem átti að passa að hann dytti ekki til hliðanna) og þá fyrst fékk hjólið almennilegt skemmtanagildi fyrir Þóri. Hann tók skrúfuna og festinguna og lék sér við að pota skrúfunni í skrúfganginn og þykjast vera að festa festinguna á hinn endann í endalaust langan tíma. Ég er náttúrulega eins og allir aðrir foreldar því mér finnst hann svo ótrúlega verklaginn og það kæmi mér ekki á óvart ef hann legði fyrir sig iðn eða jafnvel verkfræði. En koma tímar og koma ráð….
Læt fljóta með mynd af athöfninni, get því miður ekki sett myndbandið sem ég tók inn á síðuna því í miðju kafi þurfti maður að gera stykkin sín….
Kveðja – Ína
Óvenjuleg og jafnvel undarleg leigubílaferð
Heil og sæl vinir, nær og fjær. Ég er stödd í Boston þessa dagana í vinnuerindum og í dag ákvað ég að taka leigubíl í BabiesRUS sem er í úthverfi Boston. Það væri nú ekki í frásögur færandi nema þegar ég er á leiðinni heim þá bið ég afgreiðslufólkið um að hringja á leigubíl fyrir mig. Það var ekki málið. Ég bíð síðan í smá stund eftir leigubílnum. Eftir 10 mínútur stoppar bíll fyrir framan búðina,, út um farþegagluggan er gömul kona gaggandi í áttina til mín. Ég hunsa hana í upphafi en átta mig svo á að þetta er leigubíllinn minn. Bílstjórinn var kona um fertugt, vel búttuð eða rétt rúmlega það og klædd í gráar joggingbuxur og stuttermabol, svona rétt eins og hún væri að standa upp úr sófanum þar sem hún var að enda við að horfa á baseball leik í sjónvarpinu. Hún segist vera leigubílstjórinn og allt í góðu með það. Hún sér síðan að ég er með talsverðan farangur þannig að hún reynir að opna skottið, það tekst loksins með sameiginlegu átaki hennar og konunnar inní bílnum. Konan ýtir ítrekað á takka inní bílnum á meðan leigubílstjórinn reynir að opna skottið. Allt í góðu. Ég sest síðan uppí og segi hvert ég er að fara. Leigubílstjórinn rataði ekki og ekki var GPS tæki í bílnum svo hún fer að spjalla við einhvern í gegnum talstöð um hvaða leið sé best að fara, svo hringir hún GSM símtal til að fá upplýsingar. Þetta tók ca. 10 mínútur. Í millitíðinni kemst ég að því að konan í framsætinu var mamma leigubílstjórans sem hún var að sækja á spítala og hún var að keyra heim… Þegar ég settist upp í bílinn skildi ég ekkert í því hvers vegna allir gluggar voru opnir uppá gátt, þrátt fyrir að það væri kvöld og frekar kalt úti. Ég komst þó fljótlega að því hvers vegna. Gamlan var nefnilega dauðadrukkin (og greinilega var þetta engin undantekning)…. Það má þó segja að þær mæðgur voru mjög almennilegar og ræðnar og reyndist þessi leigubílaferð hin skemmtilegasta þrátt fyrir að vera undarleg….. og allar komu þær aftur og engin þeirra dó …..
Kveðja frá Boston – Ína
Vika í að alvara lífsins byrji
Eftir fjögurra mánaða frí og ferðalög þá hefst alvara lífsins að fullum krafti hjá Rokkfjölskyldunni eftir viku. Þá verða allir byrjaðir að vinna og í skóla og litli pjakkur byrjar hjá dagmömmu. Ég er að byrja í nýrri vinnu sem fjármálastjóri Vern holding ehf sem er fyrirtækið sem er að reisa netþjónabú á Keflavíkurflugvelli. Kidda er aftur byrjuð að húsvarðast hjá Samtökum Atvinnulífsins, Laufey er að byrja í 10. bekk í Laugalækjarskóla og Þórir Sólbjartur er að byrja hjá dagmömmu sem heitir Helga Margrét og býr hér rétt hjá. Já og svo byrjar skólinn hjá mér á morgun, er ekki alveg búin að ná því ennþá…..
Við vorum að koma heim úr síðasta ferðalagi sumarsins núna á aðfaranótt laugardags. Vorum í vikuferð til Köben og Gautaborgar. Heimsóttum Jógu systur Kiddu og Guðna manninn hennar en þau búa í Gautaborg og tókum því bara rólega (kíktum samt aðeins í H&M ofl. búðir). Í Köben vorum við í 2 daga og fórum í dýragarð og Tívolí með börnin. Þetta var alveg yndisleg ferð en það var gott að koma heim. Við erum búin að vera á endalausu ferðalagi í sumar. Byrjuðum á að fara til Boston, svo fórum við til Mallorca, svo tóku við útilegur og sumarbústaðaferðir, vorum viku á Bolungavík og 5 daga á Dröngum á Ströndum áður en við fórum í þessa ferð. Þetta er búið að vera alveg einstaklega skemmtilegt sumar enda ekki oft sem maður er í fjögurra mánaða fríi. Kidda er aðeins búin að vera að vinna en hún er búin að vera mikið í fríi líka.
Þórir virðist bara hafa haft gagn og gaman af þessum ferðum en hann verður 10 mánaða eftir 2 daga og er nú þegar farinn að segja nokkur orð s.s. mamma, dudda, út (segir það endalaust og bendir út um gluggann), datt og takk. Hann er líka farinn að standa einn, labba meðfram öllu, labba ef hann er með vagn eða eitthvað fyrir framan sig. Hann klappar, sýnir hvað hann er stór og vinkar. Hann er bara komin með eina tönn en við höldum að það séu að koma fleiri. Reyndar er hann sennilega með handa-, fóta og munn vírus núna en hann hlýtur að fara að hrista hann af sér enda hreystimenni mikið
.
Þar til næst…..kveðja Ína
Ég var að setja inn myndir frá því í júlí: http://www.flickr.com/photos/rokkfamily/. Hér er smá sýnishorn:


















