Lífið í Rauðalæknum

Það er alltaf verið að skamma okkur fyrir að  blogga ekki nógu oft en kannski hefur maður bara ekki frá neinu að segja….

Lífið gengur sinn vanagang hjá okkur í rokkfjölskyldunni. Mamma Ína lærir og lærir eða þannig á það allavega að vera.  Ég á bara eftir 2 skólatarnir, næstu 2 helgar, og svo byrja prófin.  Síðasta prófið er einmitt á afmælisdaginn minn þann 28. apríl.  Það er ekki í fyrsta sinn sem ég klára próf á þeim degi því síðasta samræmda prófið mitt var einmitt 28. apríl árið 1988. Hver myndi nú trúa því?  Í maí ætla ég síðan að skella mér í viku skólaferðalag til Boston en þar munum við læra um fjárfestingar og kannski skemmta okkur og versla líka. Það er viðbúið að svefn verði í lágmarki enda fer ég með æðislegu fólki. 

Kidda er húsmóðir númeró únó þessa dagana þar sem ég er svo upptekin við námið.  Hún er nú hætt að baka í bili enda blésum við út í upphafi árs. Nú er það bara hollustan sem blívar og viti menn, hún Kidda er snillingur í eldhúsinu.  Ég er ekkert smá heppin með hana :-) .  Svo er hún í mömmurækt og mannrækt þess á milli.

Laufey okkar er hinn mesti fyrirmyndarunglingur ennþá (7-9-13).  Hún er afskaplega vinnusjúk, eiginlega einum of. Hún er að vinna í Nóatúni og í sjoppu og svo passar hún börn.  Sem sagt afskaplega dugleg og samviskusöm ung stúlka. Fyrir utan hvað hún er falleg að innan og utan. Við erum s.s. afskaplega heppnar með hana.

Þórir Sólbjartur stendur undir nafninu og er algjör sólargeisli.  Hann er mjög rólegur en áberandi mikill húmoristi. Hann á það til að skellihægja svoleiðis af vitleysunni í okkur.   Hann sefur allar nætur og er farinn að borða tvisvar á dag.  Hann hefur reyndar mjög mikinn áhuga á mat eins og mömmurnar :-) .

Jæja nóg af okkur í bili, kveðja Ína

Ps. Kommentið endilega….

Nokkrar myndir frá því í febrúar

              

Smá sýnishorn af gæjanum okkar:

Töffari Hoppidíhopp Massaður Alltaf glaður 

Fleiri myndir og videó

Heil og sæl, vinir og vandamenn, nær og fjær!

Það er allmikill þrýstingur á okkur að standa okkur betur í að setja inn myndir og fréttir og því er komið að næstu atrennu.  Ég var að setja inn 109 ljósmyndir frá því í febrúar (já ykkur var nær að biðja svona mikið um fleiri myndir) og ég get lofað að þær verða engu færri settar inn frá mars mánuði.  Sjá: http://www.flickr.com/photos/rokkfamily

Það er samt alveg magnað að fara í gegnum þessar myndir og sjá hvað Þórir hefur stækkað á þessum eina mánuði.  Hann er bara orðinn algjör gaur, farinn að borða graut tvisvar á dag og langa til að borða fullorðins mat. Maður sér það á því hvernig hann starir á matinn þegar við erum að borða.  Hann virðist ætla að verða matargat eins og mömmurnar.  Já og svo er hann loksins farinn að taka pela þegar mamma hans er ekki heima með mjólkurbarinn. Trixið var að nota snuddu sem er með aukagati þar sem loft streymir inn jafnóðum. Hann var ekki alveg að fíla að þurfa að sleppa snuðinu til að hleypa lofti inn í pelann…..

Annars er hann farinn að gera sig líklegan til að fara að velta sér, er farinn að fara alveg á hliðina en svo bakkar hann alltaf aftur til baka af sinni einskæru varkárni.  Hann er ekki enn kominn með tennur en slefar þvílíkt og er búinn að gera í 3 mánuði og svo er hann gjarnan með 3 til 8 putta uppí sér í einu.  Þórir er alltaf glaður, nema helst í kringum kvöldmatinn því þá vill hann bara fara að sofa.  Hann sofnar eins og klukka um hálf níu á hverju kvöldi og sefur í einum dúr fram undir morgun, þá fær hann smá sopa og lúrir á milli þangað til hann vaknar einhverntíman á milli 7 og 9. Sem sagt algjört fyrirmyndarbarn.  Mér skilst að hann sé alveg eins og Kidda var, nema hún sofnaði enn fyrr á kvöldin eða í kringum 7 (hún er enn massa kvöldsvæf og sefur t.d. vært í lazy boy stólnum núna og er búin að gera í 1,5 tíma).  Þórir er sem sagt ekkert fyrir að vera á flakkinu á kvöldin, þá vill hann bara sofa í sínu rúmi.  Laufey var sko allt öðruvísi að þessu leitinu, hún elskaði flakk og fjölbreytni. Vildi endalaust hitta nýtt fólk og fara á nýja staði, strax á þessum aldri.  Þurfti enga reglu, hafði þetta bara eins og okkur hentaði á hverjum tíma. 

Hér kemur smá videó sem ég fann sem Kidda tók 24. febrúar en það lýsir karakternum hans Þóris Sólbjarts sérstaklega vel.  Hann er nefnilega alltaf svo glaður gæi; YouTube Preview Image

  • Undirsíður

  • Gamalt

  • Flokkar